150. löggjafarþing — 97. fundur,  5. maí 2020.

störf þingsins.

[13:45]
Horfa

Ásmundur Friðriksson (S):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að óska hv. þingmanni og formanni Samfylkingarinnar til hamingju með daginn og vegni ykkur vel. Ég vil líka færa framlínufólki, heilbrigðisstarfsfólki, lögreglu og viðbragðsaðilum bestu þakkir fyrir ótrúlega frammistöðu á undanförnum dögum og mánuðum. En ég velti fyrir mér hvað sé fram undan hjá okkur, þjóð sem hefur búið við bestu kjör. Hér var sagt í þessum stól fyrir nokkru síðan að það þyrfti 1.000 milljarða á næstu 20 árum eða u.þ.b. til að halda í skottið á þeim lífsgæðum sem þjóðin býr við í dag. En það er alveg ljóst að Covid-veiran hefur stöðvað eða hægt verulega á því að við náum því markmiði okkar.

Virðulegur forseti. Ég velti því fyrir mér hvað þurfi að gera til þess að atvinnulífið komist í gang og við getum farið að efla og nýta þær auðlindir sem landið býr yfir. Hér rétt áðan var kallað eftir nýjum og grænum lausnum. Það eru mörg tækifæri í því. Hér er mikil orka í fallvötnunum og iðrum jarðar sem getur skapað þúsundir framtíðarstarfa, vel launaðra starfa sem unga fólkið kallar eftir og við í þinginu köllum líka eftir tekjum af því atvinnulífi sem þannig getur skapast. Hér eru einnig mikil tækifæri í landbúnaði. Það eru mikil tækifæri í garðyrkjunni og við megum ekki láta þau fara fram hjá okkur. Núna eru aðrar þjóðir í Evrópu að loka fyrir innflutning til sín til að styrkja eigin iðnað, til að styrkja eigin innviði. Þar eigum við Íslendingar líka að vera. Stöndum með bændunum, stöndum með garðyrkjunni, veljum íslenskt.