störf þingsins.
Herra forseti. Eins og fleiri hér í dag óska ég þingmönnum Samfylkingarinnar og Samfylkingarfólki til hamingju með daginn. Það er mikilvægt í pólitísku lífi okkar að þau sjónarmið sem Samfylkingin stendur fyrir eigi sér sína málsvara og ágætt að hafa svona lítinn og huggulegan jafnaðarmannaflokk á þingi, [Hlátur í þingsal.] bara þannig að hann sé ekki of stór. Ég hef átt ágætt samstarf við bæði núverandi og fyrrverandi þingmenn Samfylkingarinnar og árna þeim og flokki þeirra alls hins besta.
Ástæðan fyrir því að ég tek hér til máls er ekki síst að vekja athygli á ákveðnum gjörningi sem virðist vera í gangi af hálfu hv. þm. Björns Levís Gunnarssonar sem varpar hér inn tugum spurninga um lögbundið hlutverk einstakra stofnana. Ég ætla ekki að draga úr því að það geti verið mikilvægt fyrir þingmenn að velta fyrir sér lögbundnu hlutverki einstakra stofnana en ég velti því hér upp og óska ekkert eftir svari við því í þessari umræðu en bið þingmenn að hugleiða hvort þetta sé rétta leiðin eða hvort hér sé hugsanlega verið að fara eitthvað á svig við tilganginn með fyrirspurnaforminu. Að einhverju leyti eru svör við þessum spurningum í lögum um viðkomandi stofnanir og hægt að fletta því upp þar í lagasafninu sem er öllum aðgengilegt. Ef ætlunin er hjá hv. þingmanni að spyrja um eitthvað tiltekið sem varðar tilteknar stofnanir er hægt að gera það með markvissari hætti en að gera það sem hefur birst okkur hér í dag og í gær. Ég myndi segja að ef þingmaðurinn hefur einhvern afmarkaðan skilgreindan tilgang með þessu spurningaflóði væri rétt að það væri upplýst þannig að ekki væri verið (Forseti hringir.) að fylla þingskjölin og verkefni ráðuneytanna með spurningum af þessu tagi, eins ómarkvisst og þetta virðist vera. (JÞÓ: Var Birni Leví gefið tækifæri á að svara? Það er meginreglan.)