störf þingsins.
Forseti. Með leyfi forseta:
„Frá og með morgundeginum hefjum við vegferð okkar, skref fyrir skref, í átt að bjartari dögum.“
Svona komst hæstv. forsætisráðherra að orði í ávarpi sínu til þjóðarinnar á sunnudaginn. Nú er kominn dagurinn eftir þennan morgundag og hvað gerist þá? Frekar en að sjá eintóm fyrirheit um bjartari daga á dagskrá þingfundar birtist gamall kunningi, stórhættulegt og margtuggið frumvarp dómsmálaráðherra um breytingar á útlendingalögum. Þetta frumvarp vakti hörð viðbrögð þegar Sigríður Andersen birti það í samráðsgáttinni fyrir ári og þegar Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir lagði það fram á þingi. Nú þrjóskast ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur við og leggur fram þetta frumvarp í þriðja sinn, nú á tímum þar sem lítið ber á því eins og til að lauma því fram hjá þjóðinni.
Versta breytingin í frumvarpinu er lúmsk, bara brottfall á einum staflið, og hefur það í för með sér að stór hópur fólks sem sækir um alþjóðlega vernd á svo til enga von um að fá hana. Þetta er fólkið sem við sjáum reglulega í fjölmiðlum, fjölskyldur á flótta og fólk sem glímir við veikindi, barnshafandi konur, nýburar og börn í íslensku skólakerfi, fólk sem hefur fengið hæli í ríkjum eins og Grikklandi þar sem fólk býr í tjöldum árum saman án aðgangs að rafmagni og vatni, ríkjum eins og Ungverjalandi og Búlgaríu þar sem flóttafólk á á hættu að verða beitt ofbeldi af lögreglunni, ríkjum sem geta ekki tryggt því mannsæmandi aðstæður þannig að fólk leggst á flótta undan kerfinu sem á að vernda það.
Það á að fella niður lagaheimildina sem gerir okkur kleift að leyfa þessu fólki að vera. Verði þetta frumvarp að lögum hefur hvorki Útlendingastofnun né kærunefnd útlendingamála einu sinni heimild til að taka mál þessa fólks til umfjöllunar. Það er ekki hægt að skreyta sig með samstöðu einn daginn en snúa svona baki við flóttafólki daginn eftir. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)