störf þingsins.
Forseti. Frumvarp Pírata um frestun nauðungarsölu er komið fram. Það byggir algerlega á frumvarpi sem Hanna Birna Kristjánsdóttir, þáverandi hæstv. innanríkisráðherra, lagði fram á sínum tíma, 2013, takið eftir, það var samt sem áður fimm árum eftir hrunið, versta efnahagshrun á Íslandi. Núna í miðjum Covid-faraldrinum vitum við að líklega verður þetta versta efnahagskreppa Íslands í heila öld. Fimm árum eftir síðasta hrun, í síðustu kreppu, var samt sem áður verið að leggja fram frumvarp um frestun nauðungarsölu. Það er kominn tími til að gefa þessi skýru skilaboð: Alþingi Íslendinga ætlar að fresta nauðungarsölum, alla vega í ár til að byrja með, kannski gæti þurft að fresta þeim lengur í framhaldinu. Um það snýst frumvarp Pírata. Frumvarpið er komið fram. Fordæmi fyrir slíku frumvarpi er til staðar og það rúmast innan ákvæðis stjórnarskrárinnar um eignarréttinn. Þetta gildir bara um heimili fólks þar sem það heldur heimili. Faraldurinn mun valda þessari verri kreppu.
Nú er boltinn hjá alþingismönnum sem geta sent þau skilaboð í dag að þeir geta látið prenta frumvarpið upp og setja nafn sitt á það eða hjá ríkisstjórninni sem getur tekið málið upp og útfært með sínum hætti. Boltanum hefur verið kastað. Það er kominn tími á að senda skilaboð út í samfélagið að við ætlum að fresta nauðungarsölum, fólk á að fá það svigrúm.
Varðandi þau verkföll sem voru að hefjast núna í dag kl. 12 sem 90% félagsmanna Eflingar samþykktu, sem Efling hafði frestað vegna Covid-faraldursins, þá er Efling búin að semja við Reykjavíkurborg og leysa vinnudeilu með samningum, en samt þráast nokkur sveitarfélög, þ.e. Ölfus, Kópavogur, Mosfellsbær og Seltjarnarnes, öllum stjórnað af Sjálfstæðismönnum, við að semja jafn vel og Efling samdi við Reykjavíkurborg, velferðarsamningana þar, semja jafn vel og Efling gerði við ríkið. Velferðarsamningarnir við Reykjavíkurborg eru fordæmi, þeir eru til staðar. Það er hægt að fara þá leiðina. (Forseti hringir.) Það er ekki á borðinu að setja lög á verkfallið. Það sem væri á borðinu fyrir velferð barna sem þessir einstaklingar sinna (Forseti hringir.) og barna þessara foreldra væri að setja þau lög að sveitarfélögin þurfi að ganga að sambærilegum (Forseti hringir.) samningum og Efling gerði við Reykjavíkurborg.