vernd uppljóstrara.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni ágæta reifun á mörgum mjög áhugaverðum álitamálum sem komu upp í vinnu nefndarinnar og leita á mann þegar maður er að skoða þetta mál. Þetta með góða trú er alveg hárrétt, það er dálítið erfitt hugtak, bona fide, og við fáum þetta frá Mannréttindadómstólnum, þ.e. við fáum viss vandræði við þessa skilgreiningu þaðan sem er að finna í greinargerð.
Ég ætla samt ekki að dvelja svo mikið við það hér, heldur langar mig aðeins að heyra hvort hv. þingmaður hefur velt nokkru fyrir sér. Mér finnst hann dálítið ganga út frá því að um sé að ræða einhvern starfsmann fyrirtækis sem sé að segja satt. Hvað ef einhver starfsmaður fyrirtækis er að segja ósatt og er í einhvers konar ófrægingarherferð á hendur gömlum vinnuveitanda eða eitthvað því um líkt? Ég er ekki að gera því skóna að slíkt sé algengt, en þegar við setjum lög þurfum við að gera ráð fyrir öllum möguleikum. Mér dettur í hug að út af þessum möguleika þurfi einhvern veginn að afmarka það hverjir skuli njóta verndar og hverjir ekki. Ef einhver er að segja ósatt um fyrirtæki og bera fyrirtækið þungum sökum sem koma til með að skaða þetta fyrirtæki mjög mikið þegar það kemur fram í opinberri umræðu, kannski erfitt að verjast því og erfitt að neita því, á slíkur aðili að njóta þess háttar verndar sem við erum að tala um í þessu frumvarpi? Þetta er áhugaverð spurning, gjörðu svo vel.