vernd uppljóstrara.
Virðulegi forseti. Vandi minn er svolítið sá að ég er ekki ósammála frumvarpinu, ég er ekki á móti frumvarpinu og vissulega ekki markmiðum þess, mér finnst óþægilegir hlutir bara enn óljósir og óskýrir sem mér finnst grundvallaratriði að séu skýrir og ljósir. Ég vona að ég hafi rangt fyrir mér. Það gleður mig að hv. þingmaður skuli hafa komið í pontu þar sem hann skrifaði undir nefndarálitið og lýst þessu svona vegna þess að það rennir áfram stoðum undir það að þetta sé sem skýrast ef á reynir.
Að mínu mati höfum við á Alþingi hins vegar ákveðna tilhneigingu til að ofmeta lögskýringargögn. Það hefur komið fyrir að fólk vill koma einhverju áleiðis, einn nefndarmaður stingur upp á því að setja það inn í efnistexta frumvarpsins eða tillögunnar eða hvað það er en frekar er farin sú leið að setja það í nefndarálit, ræður og lögskýringargögn, greinargerð með frumvarpi eða því um líkt. Ég óttast að það sé ofmetin leið. Ég held að við á Alþingi hugsum aðeins of mikið þannig að þegar lögfræðingar og dómstólar fari að útkljá þessi mál fari þeir alltaf í lögskýringargögnin. Þeir fara hins vegar ekkert í lögskýringargögnin nema hafa eitthvert tilefni til þess, þegar lagatextinn sjálfur dugar ekki til. Lögskýringargögn eru nefnilega ekki lög, þau eru lögskýringargögn, og þess vegna hef ég efasemdir um að það dugi að setja það í lögskýringargögnin. Í kenningunni ætti það alltaf að duga en kenningin er ekki raunveruleikinn.
Hvað varðar það að upplýsingarnar eigi erindi til almennings finnst mér svo mikilvægt að við hugum að hlutverki fjölmiðla. Það er þeirra hlutverk að ákveða hvað eigi erindi til almennings og hvað ekki. Mér er minnisstætt hið svokallaða Klaustursmál. Þar var ýmislegt sagt sem fólk getur alveg haft sínar skoðanir á hvort átti erindi til almennings, bæði það sem rataði í fjölmiðla og að sögn eitthvað sem rataði ekki í fjölmiðla. Það var og er mikilvægt að fjölmiðlar sjái um þetta en ekki dómarar.