vernd uppljóstrara.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þetta. Ég vildi bara árétta það og taka það fram að ég skrifa undir þetta nefndarálit vegna þess að þarna er einmitt ekki verið að fjalla sérstaklega um þær hvatir, góðar eða illar, sem starfsmenn séu haldnir þegar þeir koma upplýsingum um ámælisverða háttsemi eða lögbrot á framfæri heldur kemur skýrlega fram, í umfjöllun um 1. gr. frumvarpsins í greinargerð, að í hugtakinu „í góðri trú“ felist í meginatriðum að starfsmaður hafi góða ástæðu til að telja þær upplýsingar sem hann miðlar sannar en jafnframt að hann hafi talið í þágu almennings að miðla þeim og að hann hafi ekki átt annan kost til að koma í veg fyrir umrædda háttsemi. Svona skil ég hugtakið „í góðri trú“ og ekki öðruvísi. Ég lít ekki svo á að þarna láti fólk stjórnast af því hvort það er góðar manneskjur eða síður góðar manneskjur heldur einvörðungu að fólk telji ástæðu til að ætla að þær upplýsingar sem það kemur á framfæri séu sannar og eigi erindi við almenning.