150. löggjafarþing — 97. fundur,  5. maí 2020.

vernd uppljóstrara.

362. mál
[15:19]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er kannski rétt að ég árétti að mér finnst ekki rétt að hafa hugtakið „í góðri trú“ þarna inni. Þetta var mikill ásteytingarsteinn í umræðu Evrópuráðsins og þingsins um þá tilskipun sem nú verður að lögum, þ.e. tilskipun ráðsins, í þeim umræðum sem áttu sér stað áður en hún gekk í gildi og var nánast til þess fallinn að eyðileggja þann grundvöll sem var þar að finna, vilji sumra aðildarríkja til að skilyrða uppljóstraravernd við góða trú uppljóstraranna. Það sem þetta gerir er að það vekur upp vafa. Það gefur okkur huglægt verkfæri til þess að meta hvort uppljóstrun eigi rétt á sér eða ekki. Það setur það í hendur dómstóla að ákveða hvað telst góð trú. Ég tel að auðvitað hjálpi þetta nefndarálit til við þann skilning að þetta eigi bara við um að viðkomandi þurfi að hafa verið í góðri trú um að upplýsingarnar væru sannar. Það er í sjálfu sér ágætt en það er verra að greinargerðin með frumvarpinu sé ekki skýr með það og það er verra yfir höfuð að þetta hugtak sé þarna inni.