150. löggjafarþing — 97. fundur,  5. maí 2020.

samvinnuverkefni um vegaframkvæmdir.

662. mál
[17:40]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Hv. þingmaður talar einmitt um ódýrari, hagkvæmari og umhverfisvænni möguleika og að sjálfsögðu geta allir unnið og vinna að þeim markmiðum held ég, hvort sem eru einkaaðilar eða ekki, ég ætla rétt að vona að opinberir aðilar séu einnig að vinna að því markmiði að gera allt ódýrara, hagkvæmara og umhverfisvænna. Ef ekki, þá erum við í mjög miklum vandamálum á ákveðnum grundvallarforsendum þess að hafa opinbera starfsemi yfirleitt því að þegar allt kemur til alls er það bara fólk sem sér um þennan rekstur, hvar sem það er í starfi. Fólk er bara fólk, hvort sem það er í einkarekstri eða opinberum rekstri.

Ég tek undir það með hv. þingmanni að Sundabrautin er einmitt gríðarlega áhugaverð framkvæmd og hefur verið það. Hún hefur eiginlega verið í mörg ár, áratugi, í kortunum. Það er ástæða fyrir því, hún er í rauninni nauðsynleg fyrir skipulag á höfuðborgarsvæðinu.

En það er þessi ákveðna pæling með einkaframkvæmdina í því og forgangsröðun þeirra verkefna sem við erum að vinna með í samgönguáætlun og í opinberum gjöldum sem eru ekki alveg mörkuð eins og er. Það er búið að taka markaðar tekjur í gegnum bensíngjaldið og þess háttar og við forgangsröðum á ákveðinn hátt í samgönguáætlun. Þá hef ég kvartað undan því dálítið á undanförnum misserum að maður fær aldrei heildarforgangsröðun, maður fær ekki endilega að sjá dýptina, hver eru næstu verkefni á eftir því sem samgönguáætlunin nær yfir til að sjá hvort þar eru einhver verkefni sem við erum þá að hífa upp framar í röðinni, því að augljóslega erum við að nota þá forgangsröðun sem er í samgönguáætlun. Það eru þau verkefni sem eru mikilvægust, hagkvæmust, arðbærust, umhverfisvænust o.s.frv. það eru aðalverkefnin sem við (Forseti hringir.) sjáum, að eigi að fjármagna með opinberu fé en það vantar hinar (Forseti hringir.) sem eru fyrir neðan. Ég var að velta fyrir mér hvort hv. þm. gæti hjálpað mér aðeins með að sjá hvar Sundabraut er einmitt í (Forseti hringir.) þeirri röð.