150. löggjafarþing — 97. fundur,  5. maí 2020.

heimild til að stofna opinbert hlutafélag um uppbyggingu samgönguinnviða á höfuðborgarsvæðinu.

735. mál
[20:50]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég veit að hæstv. ráðherra vill vel. Markmiðin eru eitt en þetta er ekki leiðin til að ná þeim markmiðum sem hæstv. ráðherra lýsti. Jú, við þurfum að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og ég hef rætt það í þaula í þinginu áður. Þetta er sannarlega ekki leiðin til þess, ekki frekar en að áformin um að styðja Strætó um milljarð á ári og að loka á hinar framkvæmdirnar, sem við báðir viljum sjá, dró úr losun gróðurhúsalofttegunda. Þegar ráðist verður í borgarlínu þá liggur það bara fyrir af hálfu borgarinnar hvað verður. Nú verður reyndar að viðurkennast að oft hefur borgarstjóri aðra skoðun á því hvaða samning er búið að skrifa undir en ráðherrar, en því miður reynist túlkun borgarstjórans yfirleitt á endanum rétt, hann er með kerfið með sér. Því miður er þessi borgarlína, eins og borgin getur útskýrt, til þess ætluð að þrengja að umferðinni. Víða er ekki hægt að bæta við tveimur akreinum á helstu stofnvegum. Þá verður tekin ein akrein í hvora átt undir borgarlínu, sem væntanlega er ekki lest, ef ég skil hæstv. fjármálaráðherra rétt, hugsanlega bara strætó, ný strætóakrein. Ef menn ætla að eyða 70, 100, 120 milljörðum í nýja strætóakrein þá finnst mér mikið í lagt. Það þrengir að umferðinni og virkar ekki fyrir umferðina eins og hún er í Reykjavík og á höfuðborgarsvæðinu á Íslandi.

Varðandi þessar mikilvægu framkvæmdir sem ég tek heils hugar undir með fjármálaráðherra að hefði átt að vera fyrir löngu búið að ráðast í: Af hverju tekur ekki ríkið bara ákvörðun um að ráðast í þær framkvæmdir í stað þess að fara til borgarstjóra og biðja um leyfi til að ráðast í löngu tímabærar úrbætur, m.a. öryggisúrbætur, á samgöngukerfi borgarinnar og borga svo fyrir tugi milljarða af eigin peningum af landi og með framtíðarskattpíningu höfuðborgarbúa?