150. löggjafarþing — 97. fundur,  5. maí 2020.

heimild til að stofna opinbert hlutafélag um uppbyggingu samgönguinnviða á höfuðborgarsvæðinu.

735. mál
[20:52]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Mig langar að nefna nokkur atriði af því að hér var komið inn á það áðan að verið væri að neyslustýra og þröngva fólki til þess að nýta sér samgönguvalkosti sem það hefði kannski ekki áhuga á. Ég held að þetta sé akkúrat öfugt. Við erum að fjölga valkostunum fyrir fólk á höfuðborgarsvæðinu með því að fara í framkvæmdir og tryggja að valkostirnir séu til staðar. Það er ekki beint neyslustýring heldur er kannski miklu frekar verið að auka frelsi fólks.

Ég ætla líka að segja það hér að það skiptir máli að hafa góðar almenningssamgöngur og þær hafa ekki verið það á höfuðborgarsvæðinu, þær hafa verið daprar, lélegar. Ein leið til að gera ástandið betra er að koma með nýjar akreinar sem geta tryggt greiðari almenningssamgöngur. En þær geta verið meira þessar nýju akreinar, þær geta verið forgangsakreinar, t.d. fyrir þá sem ferðast þrír eða fjórir saman í bíl. Við getum veitt þeim sérstakan forgang í umferðinni og þannig tryggt að við verðum minna föst í umferðarhnútum í framtíðinni. Að langmestu leyti, ég heyri ekki annað, ég ætla að leyfa mér að segja það, sé hv. þingmaður sammála markmiðunum í þessu en vilji jafnvel að ríkið geri meira. Þá vakna spurningar um fjármögnun sem hv. þingmaður hefur eiginlega alveg látið hjá líða að ræða.