150. löggjafarþing — 97. fundur,  5. maí 2020.

heimild til að stofna opinbert hlutafélag um uppbyggingu samgönguinnviða á höfuðborgarsvæðinu.

735. mál
[21:46]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Vinstri grænna, Kolbeini Óttarssyni Proppé, fyrir fyrri ræðuna. Ég skoðaði þetta nú og hv. þingmaður er töluglöggur maður. Ég fann frétt um þessa samgöngukönnun frá 19. mars á heimasíðu Stjórnarráðsins. Ég verð að viðurkenna að ég hafði ekki lesið þessa könnun, margt að lesa og þá fyrst og fremst um Covid og efnahagsmál undanfarnar vikur. En þarna segir: Notkun almenningssamgangna eykst í 5%. Hv. þingmaður hélt því fram að þetta væru 6% og munurinn á 5% og 6% er kannski ekkert rosalega mikill. En það er engu að síður verulegur munur þegar hlutfall farinna ferða hefur verið 4% allan tímann sem átaksverkefnið hefur staðið og síðan stekkur það upp í 5% í eitt ár.

Þá held ég að það væri tillaga sem mig langar til að leggja til og spyrja hv. þingmann um afstöðu hans til hennar, í ljósi þess að vöxtur var upp á 25% í hlutfalli milli ára; 4% farinna ferða upp í 5% farinna ferða er 25% aukning: Gæti hv. þingmaður séð fyrir sér að við myndum þá framlengja núverandi fyrirkomulag í nokkur ár til að sjá hvort innstæða sé fyrir því að 25% aukning verði á hlutfalli ár frá ári? Eða er hv. þingmaður algjörlega búinn að festa sig í þeim farvegi að það eina sem skipti málið sé borgarlína? Því að ef niðurstaðan er að verið hafi 25% aukning á milli ára eftir áratugastopp í 4% er ástæða til að láta á það reyna hvort sá vöxtur sé komin til að vera. Og sé sá vöxtur kominn til að vera, og þá verðum við búin að ná markmiðum hv. þm. Bryndísar Haraldsdóttur innan fárra ára, þarf ekki tugmilljarða framkvæmdir til.