heimild til að stofna opinbert hlutafélag um uppbyggingu samgönguinnviða á höfuðborgarsvæðinu.
Virðulegur forseti. Ég ætlaði mér nú ekki að koma í aðra ræðu en ég eiginlega gat ekki annað því að andsvörum var lokið. Ég bara óska þess að hv. þm. Kolbeinn Óttarsson Proppé ílengist hér í salnum því að ég vil koma inn á það í ræðu minni að það er í meginatriðum verið að bera saman epli og appelsínur í þessu máli. Eru til að mynda einhver dæmi þess að 200.000 manna borgir í Skandinavíu eða Evrópu, sem eru jafn útbreiddar yfir sambærilegt landsvæði og hér er, séu með það sem er kallað borgarlína? Eru dæmi þess? Er ekki vandinn sá að það hefur verið holað niður allt of fjölmennum vinnustöðum á sama svæðinu? Það er það sem orsakar þessi miklu þrengsl hér og hnúta sem við þekkjum öll, sérstaklega í kringum Landspítalann og háskólasvæðin.
Hér er reglulega búið að spyrja í umræðunni: Hver er lausnin á þessu, að mati Miðflokksins? Lausnin er, eins og ég kom inn á, til skemmri tíma ljósastýringar og að hleypa mikilvægum stofnbrautaframkvæmdum áfram. Það er að með skipulagsvaldinu dreifi menn fjölmennum vinnustöðum um höfuðborgarsvæðið. Miðflokkurinn gagnrýndi t.d. harkalega uppbyggingu nýs Landspítala við Hringbraut. Það hefði verið mun betri kostur að hann væri við Vífilsstaði eða í Keldnalandinu sem nú á að afsetja með einhverjum æfingum í tengslum við borgarlínu. Þetta eru lausnirnar sem eru við hendina og er hægt að taka ákvarðanir um strax. Lausnirnar eru þarna. Þessi della, þessi meinloka sem hluti þingmanna hefur bitið í sig, að svokölluð borgarlína sé allra meina bót — það virðist ekkert hægt að rökræða þetta atriði við þá sem eru búnir að taka trúna í þessum efnum.
Mér finnst blasa við að fara eigi í betri ljósastýringar og nútímavæddar. Ef rétt er að þær geti minnkað stopptíma um 30% plús/mínus, er það auðvitað algjörlega geggjað að ekki sé löngu búið að ganga til þeirra verkefna innan höfuðborgarsvæðisins. Við erum að horfa á þrengingarframkvæmdir Reykjavíkurborgar linnulaust sem þrengja að einkabílnum og umferðarflæði. Eins og ég kom inn á í ræðu minni áðan, Geirsgata bara síðast í gær þar sem búið er að skipuleggja mál þannig að strætó stoppar úti á miðri götu.
Lausnirnar eru þarna en risastórt atriði er að það þarf að dreifa stórum vinnustöðum betur. Það er auðvitað hluti af skipulagsvaldi Reykjavíkurborgar sem þau hafa tekið meðvitaða ákvörðun um að nýta ekki. Þau hafa nýtt skipulagsvaldið til þess að þrengja eins og mögulegt er að Reykjavíkurflugvelli í Vatnsmýrinni með það fyrir augum að losna við hann, þrengja að allri umferð og þar fram eftir götunum.
Ég sé að hv. þm. Kolbeinn Óttarsson Proppé er búinn að óska eftir því að fara í andsvar og mig langar til að kasta fram spurningu til hans, ég veit að það er engin skylda hans að svara, en mig langar samt til að spyrja hann þessarar spurningar sem ég opnaði ræðu mína á: Eru margar 200.000 manna borgir í Evrópu sem hann þekkir til, byggðar upp eins og Reykjavík á svona stóru svæði og höfuðborgarsvæðið allt, Reykjavík og aðliggjandi sveitarfélög, sem hafa borgarlínu á þeim nótum sem hv. þm. Kolbeinn Óttarsson Proppé talar fyrir? Telur hv. þm. Kolbeinn Óttarsson Proppé það réttlætanlegt að þessi markmið séu þvinguð fram með því að þrengja að einkabílnum sem er þrátt fyrir allt sá ferðamáti sem meiri hluti íbúa höfuðborgarsvæðisins og landsmanna allra hefur valið?