heimild til að stofna opinbert hlutafélag um uppbyggingu samgönguinnviða á höfuðborgarsvæðinu.
Frú forseti. Ég er strax farinn að gerast ómerkingur orða minna, ég sagðist ekki nenna að eyða meiri tíma í þetta þrugl, en ég kem eiginlega til að segja það aftur að spurning hv. þingmanns er röng. Það þarf ekki annað en að kynna sér ársreikninga þeirra sveitarfélaga sem mynda höfuðborgarsvæðið til að sjá þá fjármuni sem hafa farið í ýmis umferðarmannvirki og fleira slíkt. Hann þarf ekki annað en að hlusta á sjálfan sig. Hann talar um umferðaraukningu vegna einkabílsins sem skýri hvers vegna 2,7 milljóna fjölgun farþega Strætó skilar ekki hærra hlutfalli, vegna þess að bílunum fjölgar. Hv. þingmaður ætti kannski að reyna af og til í umræðunni að vera samkvæmur sjálfum sér.