kyrrsetning, lögbann o.fl.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir framsöguna og ég fagna því að þetta mál sé komið fram. Það á sér auðvitað ákveðinn aðdraganda. Við sáum það gerast í aðdraganda kosninganna 2017 að lögbann var sett á fréttaflutning fjölmiðils um fjármálagjörninga þáverandi forsætisráðherra, núverandi hæstv. fjármálaráðherra, Bjarna Benediktssonar, tveimur vikum fyrir kosningar. Skaðinn sem af því hlaust verður ekki aftur tekinn þar sem málsmeðferðin fyrir dómstólum tók rúmt ár og því ljóst að fréttavirði þeirra upplýsinga sem miðlinum Stundinni var bannað að miðla hafði auðvitað hríðfallið.
Það er ánægjulegt að sjá að hraða á málsmeðferðinni umtalsvert. Sú sem hér stendur lagði tvisvar sinnum fram frumvarp þess efnis að þessi ákvörðun yrði einfaldlega tekin úr höndum sýslumanna vegna þess að á opnum fundi stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar, sem reyndar er vísað í í greinargerð með frumvarpinu, kom fram að sýslumaður virtist bara ekki hafa grundvallarskilning á hugtökum um tjáningarfrelsi og hvernig skyldi meta það. Þá fannst mér einboðið að setja það í hendur dómstóla sem þó hafa tekið sig verulega á þegar kemur að vernd tjáningarfrelsis á Íslandi.
Í þessu samhengi vil ég spyrja, vegna þess að frumvarpshöfundur og hæstv. ráðherra tekur hér ákvörðun um að hafa ákvörðunarvaldið áfram í höndum sýslumanns, hve langan tíma flýtimeðferð fyrir dómstólum muni taka. Liggur fyrir einhvers konar áætlun um það, ef það gerist eins og gerðist í máli Stundarinnar að málsaðilar áfrýja endalaust o.s.frv., í hversu langan tíma fjölmiðlar gætu þurft að bíða þangað til endanleg úrlausn þeirra mála liggur fyrir dómstólum?