150. löggjafarþing — 97. fundur,  5. maí 2020.

kyrrsetning, lögbann o.fl.

710. mál
[22:21]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er jákvætt að verið er að setja skyldu á herðar sýslumanni að taka til greina tilvísun í tjáningarfrelsi vegna þess að á umræddum opnum fundi kom einmitt fram að sýslumaður hafði bara ekkert skoðað tjáningarfrelsisákvæði stjórnarskrárinnar og ekki mannréttindasáttmála Evrópu þegar hann tók þá ákvörðun að setja lögbann á Stundina. Það kom mjög skýrt fram í máli hans þannig að það er kannski ágætt að sett sé á hann lagaleg skylda til að bregðast við þegar svo ber undir. Það er svo sem jákvætt í sjálfu sér. Vonandi breytir það því ömurlega verklagi sýslumannsins að taka ekki tillit til tjáningarfrelsisins þegar um lögbann á umfjöllun fjölmiðla er að ræða.

En hvað varðar tímafrestina er tiltölulega stuttur tími mjög teygjanlegt hugtak, sérstaklega þegar kemur að málsmeðferð dómstóla, og því langar mig að spyrja hæstv. ráðherra hvort hún hafi einhverja grófa tölu. Erum við að tala um nokkra mánuði? Erum við að tala um ár? Erum við að tala um nokkrar vikur? Ég átta mig ekki almennilega á því. Ég hef ekki mikið verið að fylgjast með því hvernig flýtimeðferðir eiga sér stað en ég hefði haldið að það væri gott að hafa einhvers konar lágmarksviðmið vegna þess að nokkrar vikur geta strax skipt mjög miklu í fréttaflutningi fjölmiðla, gríðarlega miklu. Erum við að tala um daga, vikur, mánuði, ár? Þó að það væri ekki nema slík tímaágiskun sem ég fengi frá hæstv. ráðherra væri það strax til þess að upplýsa málið betur.