150. löggjafarþing — 98. fundur,  6. maí 2020.

lengd þingfundar.

[15:41]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P):

Virðulegur forseti. Þingflokkur Pírata er allur af vilja gerður að vinna hér langt fram eftir nóttu jafnvel til að vinna að mikilvægum aðgerðum vegna Covid-19. Við lögðum hins vegar ekki blessun okkar yfir það að vinna hér fram á kvöld í því að koma á enn ómannúðlegri Útlendingastofnun og útlendingastefnu en nú þegar er í gildi á Íslandi.

Þar af leiðandi segjum við nei við lengdum þingfundi og nei við þessu óbermisfrumvarpi.