150. löggjafarþing — 98. fundur,  6. maí 2020.

heimild til að stofna opinbert hlutafélag um uppbyggingu samgönguinnviða á höfuðborgarsvæðinu.

735. mál
[15:49]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf):

Herra forseti. Ég tek undir þau orð þingflokksformanns Viðreisnar sem talaði hér, hv. þm. Hönnu Katrínar Friðriksson, að sambærileg mál eru á borði hv. umhverfis- og samgöngunefndar en ekki fjárlaganefndar og að þetta mál ætti að vera þar til umfjöllunar af því að verið er að tala um innheimtu veggjalda og stofnun hlutafélags vegna þess. Því teljum við ekki rétt að svona sértækt mál fari í hv. fjárlaganefnd.