um fundarstjórn.
Herra forseti. Í framhaldi af orðum hv. þingmanns legg ég til að menn velti fyrir sér hvort virðing Alþingis eigi að helgast og skapast af því hvort fólk sé með hálstau eða ekki, hvort menn fylgi klæðahefð yfirstéttarinnar á 19. öld eða séu í þægilegum fötum, helst þvegnum og snyrtilegum. Það er aðallega auðvitað að menn, og við öll, gæti að orðum sínum og séu þokkalega kurteisir hver við annan, a.m.k. þegar það á við. Ég vísa því til föðurhúsanna að virðing Alþingis standi í einhverju samhengi við það hvort fólk er hér með bindi eða á skyrtunni jafnvel og held að það hafi ekkert endilega hrapað við það að einn eða tveir þingmenn hafi ákveðið að vera á sokkunum.