150. löggjafarþing — 99. fundur, 6. maí 2020.
afbrigði.
Svo háttar til um 1. dagskrármálið að of skammt er liðið frá útbýtingu nefndarálits og breytingartillagna í því og svo háttar til um 5. dagskrármálið að því var útbýtt eftir 1. apríl og þarf því að leita samþykkis fyrir því að taka megi málin á dagskrá. Lítur forseti svo á að afbrigðin skoðist samþykk ef enginn hreyfir andmælum við því.
Enginn hreyfir andmælum og afbrigðin eru samþykkt og geta málin því komið fyrir síðar á þessum fundi.