150. löggjafarþing — 99. fundur,  6. maí 2020.

frekari aðgerðir til að mæta efnahagslegum áhrifum í kjölfar heimsfaraldurs kórónuveiru.

726. mál
[16:28]
Horfa

Frsm. efh.- og viðskn. (Óli Björn Kárason) (S):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti efnahags- og viðskiptanefndar um frumvarp til laga um frekari aðgerðir til að mæta efnahagslegum áhrifum í kjölfar heimsfaraldurs kórónuveiru á þskj. 1322. Frumvarpið er annar liður í aðgerðum stjórnvalda vegna þeirra efnahagslegu áfalla sem heimsfaraldur Covid-19 hefur í för með sér. Aðgerðunum er ætlað að aðstoða og vernda fyrirtæki jafnt sem einstaklinga og veita atvinnulífinu viðspyrnu þegar rofar til. Líkt og kemur fram í nefndarálitinu fékk nefndin fjöldamargar umsagnir og fékk líka fjölmarga á fund sinn, og vitna ég bara í nefndarálitið með því. Efni frumvarpsins er í megindráttum það að verið er að ræða frestun skattgreiðslna lögaðila, skattalega meðferð og eftirgjöf skulda lögaðila og einstaklinga í atvinnurekstri, eflingu nýsköpunar, endurgreiðslu virðisaukaskatts til sveitarfélaga, rýmkun á fjárfestingarheimildum lífeyrissjóða, tekjustofna sveitarfélaga og tímabundnar greiðslur vegna launa einstaklinga sem sæta sóttkví auk rekstrarstuðnings til einkarekinna fjölmiðla.

Eins og kemur fram í nefndarálitinu gerir nefndin töluvert margar breytingartillögur og ætla ég að fara yfir nokkrar þær helstu. Að öðru leyti vísa ég í hið skriflega nefndarálit. Vert er að benda á að nýtt ákvæði kemur inn í frumvarpið er varðar álagningarskrá og framlagningu hennar. Í ljósi aðstæðna sem nú ríkja þykir ekki æskilegt að skattinum sé skylt að leggja fram álagningarskrá fyrir hvert sveitarfélag að lokinni álagningu á skattaðila á þessu ári vegna tekna ársins 2019 og því er lagt til að við lögin bætist nýtt bráðabirgðaákvæði þess efnis.

Umfangsmestu atriðin í tillögum nefndarinnar snúa að stuðningi við nýsköpun. Nefndin telur rétt að gera breytingar á hlutfalli skattfrádráttar og hámarksfjárhæða með það að markmiði að styðja enn frekar við íslenskt nýsköpunarumhverfi og leggur til breytingar á 2. gr. frumvarpsins í því skyni. Við útreikning skattfrádráttar verði aðeins miðað við eina hámarksfjárhæð sem verði 1.100 milljónir við álagningu árin 2021 og 2022 vegna rannsóknar- og þróunarkostnaðar. Þar af verði nýsköpunarfyrirtækjum heimilt, en ekki skylt, að telja til rannsóknar- og þróunarkostnaðar allt að 200 millj. kr. vegna aðkeyptrar þjónustu. Jafnframt verði komið á þrepaskiptingu sem feli í sér að lítil og meðalstór félög, samanber 1. og 2. tölulið 3. gr. laga um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki, geti átt rétt á skattfrádrætti sem nemur allt að 35% af útlögðum kostnaði vegna staðfestra verkefna á gildistíma bráðabirgðaákvæðisins sem bætist við lögin samkvæmt 2. gr. frumvarpsins. Stór fyrirtæki, samanber 8. tölulið 3. gr., njóti skattfrádráttar sem geti numið 25% af fjárfestingu á tímabilinu líkt og lagt var upp með í frumvarpinu.

Þá bætist við nýtt ákvæði í frumvarpið og ég hygg að mér sé óhætt að segja að það hafi verið mikill og eindreginn stuðningur við það í nefndinni. Tillögurnar miða að því að auka hvata til einstaklinga til að fjárfesta í nýsköpun. Í umsögnum Samtaka íslenskra leikjaframleiðenda og Samtaka sprotafyrirtækja var lögð áhersla á mikilvægi slíkrar fjármögnunar fyrir lítil félög í þróunarstarfsemi. Fyrir liggur að hækkun skattafsláttar til einstaklinga í þessum efnum hefði óveruleg áhrif á ríkissjóð. Með vísan til framangreinds leggur nefndin því til að skattafsláttur til einstaklinga vegna fjárfestinga í hlutafélagi eða einkahlutafélagi sem uppfyllir skilyrði 2. og 3. mgr. 1. töluliðar b-liðar 1. mgr. 30. gr. laga um tekjuskatt hækki tímabundið úr 50% í 75% af fjárhæð fjárfestingar að teknu tilliti til annarra ákvæða laga. Jafnframt hækki fjárhæðarmörk úr 10 milljónum í 15 milljónir tímabundið.

Lagðar eru til breytingar er snúa að heimild lífeyrissjóða um að eiga allt að 35% í stað 20% eins og nú er af hlutdeildarskírteinum eða hlutum í sjóðum um sameiginlega fjárfestingu sem eingöngu fjárfesta í litlum eða meðalstórum nýsköpunarfyrirtækjum samkvæmt lögum um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki. Fyrir nefndinni komu fram sjónarmið um að almenn tilvísun til laga um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki væri til þess fallin að takmarka heimildir lífeyrissjóðanna til fjárfestingar í nýsköpunarstarfsemi og auka flækjustig. Þetta var m.a. einróma viðhorf fulltrúa þeirra lífeyrissjóða og Landssambands lífeyrissjóða sem komu á fund nefndarinnar. Æskilegra væri að vísa til skilgreiningar á litlum og meðalstórum fyrirtækjum, samanber 1. og 2. tölulið 3. gr. laganna. Slík afmörkun væri betur til þess fallin að styðja fyrirtæki sem gætu orðið kjörinn vettvangur fyrir vöxt og nýsköpun. Nefndin tekur undir þessi sjónarmið og leggur til viðeigandi breytingar.

Að auki komu fram sjónarmið um hvort heimildin ætti að vera ótímabundin eða til lengri tíma en þriggja ára, sérstaklega í ljósi þess að það kann að taka nokkurn tíma að stofna slíka fjárfestingarsjóði og að rekstraraðilar kynnu þá frekar að nýta sér þau tækifæri sem felast í rýmri reglum. Til að koma til móts við þau sjónarmið leggur nefndin til breytingar á gildistíma heimildar 4. gr. frumvarpsins þannig að hún gildi til 1. janúar 2025. Í því sambandi er rétt að benda á að Landssamband lífeyrissjóða taldi að ekki ætti að tímabinda þetta en með hliðsjón af því sem við erum að gera og öllu sem við höfum verið að gera þá er meginreglan sú að við tímabindum þessar aðgerðir þannig að löggjafinn þurfi þá að taka afstöðu til þess síðar hvort menn vilja verða við slíku.

Töluverðar breytingar voru gerðar á 9. gr. frumvarpsins sem snýr að reglugerðarheimild fyrir ráðherra menntamála vegna sérstaks rekstrarstuðnings til einkarekinna fjölmiðla. Markmið þeirra breytinga, sem koma fram á sérstöku breytingaskjali, var afmarkað með betri og skýrari hætti, eftir hvaða reglum og viðmiðum ráðherra ætti að fara við mótun reglugerðar sem nauðsynlegt væri að gera til að setja um þennan sérstaka rekstrarstuðning. Að öðru leyti vísa ég í skriflegt nefndarálit.

Þá er ný grein í frumvarpinu sem nefndin leggur til og er í samræmi við frumvarp til fjáraukalaga þar sem gert er ráð fyrir að veita 250 milljónir í launasjóð listamanna í ljósi áhrifa faraldursins á sjálfstætt starfandi listamenn. Með framlaginu verði hægt að tryggja listamönnum starfslaun sem samsvarar 600 mánaðarlaunum til viðbótar við þau 1.600 sem er úthlutað vegna ársins 2020 með sömu hlutfallsskiptingu og kveðið er á um í 6.–11. gr. laga um listamannalaun, nr. 57/2009. Með hliðsjón af þessu leggur nefndin til að við lögin um listamannalaun bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða þess efnis að samanlögðum starfslaunum 2020 verði fjölgað tímabundið úr 1.600 í 2.200.

Þá er einnig ný grein hér er varðar eingreiðslu til örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega. Með 21. gr. laga nr. 25/2020 var bráðabirgðaákvæði aukið við lög um almannatryggingar þar sem kveðið er á um sérstaka eingreiðslu til örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega. Í ákvæðinu er vísað til þeirra einstaklinga sem hlutu desemberuppbót á árinu 2019 samkvæmt reglugerð um eingreiðslu til lífeyrisþega árið 2019. Í ljós hefur hins vegar komið að til að tryggja að enginn falli milli þilja í þeirri aðgerð þurfi einnig að vísa til þeirra einstaklinga sem eiga rétt á orlofsuppbót árið 2020 samkvæmt 1. mgr. 2. gr. reglugerðar um eingreiðslur til lífeyrisþega árið 2020. Nefndin leggur því til breytingar þess efnis á 23. tölulið ákvæðis til bráðabirgða í lögum um almannatryggingar.

Ég tel mig hafa gert grein fyrir helstu breytingartillögum sem ég taldi rétt að vekja athygli á. Ég vil líka vekja athygli á því að það er ábending frá nefndinni til hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra um ákveðna annmarka á skilgreiningu hugtaksins „fjárhagsvandi“ samkvæmt reglugerð um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki, nr. 758/2011, sem geti haft áhrif á það hvort félög eigi rétt til skattfrádráttar vegna rannsóknar og þróunar. Nefndin beinir því til fjármála- og efnahagsráðuneytisins að endurskoða skilgreiningu hugtaksins í reglugerðinni með hliðsjón af þeim ábendingum sem komu fram, m.a. í umsögn KPMG.

Hv. þingmenn Jón Steindór Valdimarsson, Oddný G. Harðardóttir, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Smári McCarthy skrifa undir álit þetta með fyrirvara. Hann er efnislegur og kemur fram og er hluti af þessu nefndaráliti og ég geri ráð fyrir að hv. þingmenn geri sérstaka grein fyrir því. Í raun liggja líka fyrir breytingartillögur frá nokkrum hv. þingmönnum um þetta frumvarp.

Ég vil í lokin þakka nefndarmönnum kærlega fyrir samstarfið. Þetta var ekkert alltaf einfalt en okkur tókst þó að ná saman á endanum. Ekkert okkar náði öllu sínu fram, en það er bara eins og lífið er stundum.

Að framangreindu virtu leggur nefndin til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem lagðar eru til á sérstöku þingskjali og ég hef líka tekið fram að hér liggja fyrir aðrar breytingartillögur.

Undir þetta nefndarálit skrifa hv. þingmenn Óli Björn Kárason, sá er hér stendur, Jón Steindór Valdimarsson, með fyrirvara, Brynjar Níelsson, Bryndís Haraldsdóttir, Oddný G. Harðardóttir, með fyrirvara, Ólafur Þór Gunnarsson, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, með fyrirvara, Smári McCarthy, með fyrirvara, og Willum Þór Þórsson.