150. löggjafarþing — 99. fundur,  6. maí 2020.

frekari aðgerðir til að mæta efnahagslegum áhrifum í kjölfar heimsfaraldurs kórónuveiru.

726. mál
[16:42]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf):

Herra forseti. Við lifum sannarlega óvenjulega tíma og fólk er að takast á við krefjandi verkefni, svo að ekki sé meira sagt, bæði í fyrirtækjum og á heimilum sínum. Fólk hefur áhyggjur af heilsu sinni og ættingja sinna og einnig hefur fólk áhyggjur af efnahag. Þess vegna er það nauðsynlegt, forseti, að við á Alþingi leggjum til og afgreiðum líka tillögur frá ríkisstjórninni til að mæta þessum stóra vanda. Hér höfum við verið að taka inn stór og flókin mál og vinna þau í nefndum, leggja fram breytingartillögur um þau og afgreiða síðan. En nú er svo komið, forseti, að okkur skortir að mínu mati yfirsýn á samspil þeirra aðgerða sem ríkisstjórnin hefur lagt fram og hefur boðað að hún leggi fram í næstu viku. Það verður að meta áhrif aðgerðanna til lengri og skemmri tíma á atvinnulíf, á heimilin í landinu, á velferðarkerfið og ríkissjóð. Það er löngu tímabært að kalla til fjármálaráð sem skipað er sérfræðingum í efnahagsmálum og hefur lagalegar skyldur gagnvart Alþingi. Fjármálaráð á samkvæmt 10. gr. laga um opinber fjármál að meta nauðsyn þess að ríkisstjórn setji sér nýja fjármálastefnu og fjármálaáætlun þegar forsendur bresta og flytja Alþingi um það skýrslu. Áður en lengra er haldið og fleiri aðgerðir kynntar af hálfu ríkisstjórnarinnar til afgreiðslu Alþingis verður slíkt mat að liggja fyrir.

Forseti. Ég vil vitna hér í frumvarp til laga um opinber fjármál, sem varð að lögum nr. 123/2015. Þar stendur í athugasemdum um fjármálaráð, með leyfi forseta:

„Mikilvægt er að tryggja að fram fari eins hlutlægt mat og kostur er á forsendum stefnumörkunar í opinberum fjármálum. Því er lögð til sú breyting að sjálfstætt fjármálaráð leggi mat á það hvort fjármálastefna og fjármálaáætlun séu í samræmi við annars vegar þau grunngildi sem talin eru upp í 2. mgr. 6. gr. frumvarpsins og hins vegar fjármálareglu samkvæmt 7. gr. frumvarpsins. Frumvarpið gerir jafnframt ráð fyrir að fjármálaráð greini hvort fjármálaáætlun og framkvæmd hennar sé samkvæmt fjármálastefnu. Til að tryggja gagnsæi og aðgang almennings að niðurstöðum ráðsins skal það birta álitsgerðir sínar opinberlega.

Virk stjórnun opinberra fjármála er háð því hversu aðgengilegar upplýsingar um markmið, forsendur, framkvæmd og áhrif fjármálastefnu almennt eru. Til að stjórnun opinberra fjármála sé árangursrík þarf samstillingu og samkvæmni þessara þátta. Hlutverk fjármálaráðs er að greina þetta samspil og meta hvort það sé rökrétt og uppfylli þær kröfur sem grunngildin og fjármálareglan fela í sér og fjármálastefnan hvílir á. Fjármálaráð er fyrst og fremst faglegt ráð sem beitir þeirri aðferðafræði sem best er talin á sviði hagvísinda við greiningu og rökstuðning í álitsgerð sinni. Ráðið skal stuðla að gagnsæi í umræðu um þróun opinberra fjármála. Óháð álitsgerð fjármálaráðs er grundvallaratriði í þessu samhengi.“

Þetta eru athugasemdir við frumvarp til laga um opinber fjármál sem við samþykktum hér á Alþingi árið 2015. Hvenær, ef ekki núna, væri ástæða til að kalla til fjármálaráð og biðja um sérfræðiálit, biðja um rökstuðning fyrir aðgerðum eða hreinlega bara meta þær? Auðvitað vitum við að það þarf að taka upp fjármálastefnuna en við þurfum samt rökstuðning fyrir því hvernig við eigum að halda áfram og mat á þeim aðgerðum sem ríkisstjórnin hefur lagt fram og samspili þeirra. Fjármálaráð gæti hjálpað okkur að rýna inn í framtíðina og sjá hvernig við getum tekið á þessum málum. Þó að flestir séu bara að hugsa um að smitast ekki af veirunni og lifa jafnvel frá viku til viku í fyrirtækjum og heimilum, er skýr krafa um að stjórnvöld reyni að sjá fram í tímann þó að óvissa sé mikil. Ég vona því að fjármálaráð verði kalla saman. Reyndar hefur komið fram beiðni um það bæði í fjárlaganefnd og í efnahags- og viðskiptanefnd.

Forseti. Breytingartillögur efnahags- og viðskiptanefndar við frumvarpið sem við ræðum hér eru sannarlega til bóta og við í Samfylkingunni styðjum þær. Þó hefði kannski mátt ganga lengra á ýmsum sviðum eins og að ýta enn frekar undir nýsköpun, rannsóknir og þróun í atvinnulífinu. Þær breytingartillögur sem gerðar eru eru til bóta og gengið lengra í þeim efnum en í frumvarpinu, enda er það nýsköpun og þróun í atvinnulífinu sem mun koma okkur upp úr þessum vanda þannig að það er eðlilegt að leggja mikið til þar. Ég vona að það verði gert enn frekar í framtíðinni.

Því miður er enn þá kynjahalli á úrræðinu sem kallað er Allir vinna. Við ræddum það heilmikið í nefndinni og niðurstaðan varð sú að það væri ákveðnum erfiðleikum bundið en þó eru hugmyndir settar fram í nefndarálitinu fyrir ráðuneytið til að skoða varðandi tímabundinn skattafslátt.

Skattaskjól, aflandsfélög og skatteftirlit hefur einnig verið til umræðu í nefndinni. Okkur í Samfylkingunni finnst nauðsynlegt að kveðið verði fastar á um þau bráðabirgðaákvæði og breytingar í lögum sem samþykkt eru vegna Covid-19 og það sé öruggt og skýrt að þau eigi ekki við um einstaklinga eða lögaðila með skráð eignarhald í aflandsfélögum eða lágskattasvæðum eða fyrirtæki í eigu aflandsfélaga eða félaga sem skráð eru á lágskattasvæðum. Það má vísa til 57. gr. a í lögum um tekjuskatt hvað þetta varðar. Það hlýtur að vera augljós krafa af okkar hálfu að núna þegar fyrirtæki fá aðstoð frá ríkissjóði, úr okkar sameiginlega sjóði, að við gerum þá kröfu til baka að þeir sem þiggja þá aðstoð hafi ekki svikið undan skatti, standi ekki í einhverju makki í skattaskjólum eða við aflandsfélög. Við þurfum að finna út úr því með enn skýrari hætti hvernig við getum sett fram þær kröfur. Ég bind vonir við að það verði gert í næstu afgreiðslu efnahags- og viðskiptanefndar á næstu málum. Það þarf einnig að horfa á t.d. brúarlán í gegnum þau gleraugu. Það er skýr krafa frá okkur í Samfylkingunni um að stjórnvöld komi á sérstöku eftirliti með fjármálakerfi og atvinnulífi svo það sé tryggt að ekki verði stunduð vafasöm viðskipti, markaðsmisferli eða innherjasvik í því ömurlega ástandi sem nú ríkir. Því miður, frú forseti, þó að við viljum gjarnan treysta fólkinu í kringum okkur og flestum sé treystandi, þá er ekki öllum treystandi.

En stóra athugasemdin sem við í Samfylkingunni höfum við þetta mál er að þar er ekki fjallað sérstaklega um heimilin. Við vitum að mörg heimili verða fyrir miklum búsifjum, ekki síður en fyrirtæki, og allflestir landsmenn munu finna fyrir versnandi efnahag meðan faraldurinn gengur yfir. Þess vegna verða stjórnvöld að mæta tímabundnum rekstrarvanda heimila líkt og fyrirtækja. Það þarf að horfa sérstaklega til barnafjölskyldna, einkum þeirra sem hafa orðið fyrir miklum tekjumissi vegna þessa ástands. Nú er það svo að greiðslur barnabóta miðast við laun ársins 2019 sem gefur ranga mynd af stöðu þeirra sem misst hafa vinnuna. Þess vegna finnst mér að það ætti að breyta viðmiðunum um útgreiðslu barnabóta 1. júní nk. og 1. október í ár og miða við núverandi stöðu fjölskyldnanna. Það má vera að það séu einhver tæknileg vandræði við það en það hlýtur að vera hægt á þessari tölvuöld sem við lifum á að miða t.d. útgreiðslu barnabóta við laun í apríl þegar greitt er út 1. júní. Það gefur náttúrlega alls ekki rétta mynd að miða við launin árið 2019. Viðmiðin sem ríkisstjórnin hefur lagt áherslu á að fylgja og stjórnarmeirihlutinn og samþykkt hér í þingsal eru að ef hjón eru með 625.000 hvort þá koma ekki barnabætur inn á heimilið. Nú hafa margir farið undir það mark sem voru yfir því á árinu 2019.

Við í Samfylkingunni leggjum fram breytingartillögu sem snýr að atvinnuleysisbótum. Ég vil gagnrýna stjórnarmeirihlutann fyrir að vilja ekki ræða hækkun á atvinnuleysisbótum og segja: Það er ekki kominn tími til þess að fara út í þá sálma því að fólk er ekkert komið á grunnatvinnuleysisbætur. En það er bara rangt. Þegar veiran sótti okkur heim var t.d. 9% atvinnuleysi í Reykjanesbæ og nú, herra forseti, eru þær tölur að stefna í 30% á því svæði. Það fer auðvitað eftir því hvernig ráðningarsambandið hefur verið hversu fljótt fólk lendir á atvinnuleysisbótum og þegar við teljum hverjir eru atvinnulausir þá erum við ekki að telja með fólkið sem er á uppsagnarfresti. Það er ekki inni í þessum tölum. Þannig að auðvitað þurfum við að hækka atvinnuleysisbæturnar. Tillaga okkar í Samfylkingunni er mjög hófstillt og við settum hana þannig fram til þess að það væru meiri líkur á því að stjórnarmeirihlutinn myndi fallast á hana.

Í fyrsta lagi leggjum við til að í staðinn fyrir að fólk fái 70% af meðaltali heildarlauna fái fólk 100% frá 1. júní til 31. desember 2020, en auðvitað upp að hámarki tekjutengdra atvinnuleysisbóta sem nú eru 456.000 kr. Við leggjum til að það fari upp í 516.000 kr. á tímabilinu 1. júní til 31. desember. Og af hverju gerum við það? Vegna þess að 456.000 kr. er ekki í neinum tengslum við þróun launa í landinu. Þess vegna viljum við festa í lögum þetta viðmið við tvo þriðju af meðallaunum ársins 2019. Þá fáum við út þessa tölu, 516.000, sem er ekki há tala þegar heimili þurfa að glíma við mikið tekjufall, þurfa að standa í skilum og standa undir föstum kostnaði við rekstur heimilis.

Síðan leggjum við til að grunnatvinnuleysisbætur hækki um þá krónutölu sem er í lífskjarasamningunum miðað við lægstu laun. Þetta er eðlileg krafa. Þá færu grunnatvinnuleysisbæturnar úr 289.510 kr. upp í 314.720. Það lifir auðvitað enginn á þeirri upphæð en það er þó rúmum 25.000 kr. skárra en grunnatvinnuleysisbætur eru núna og stjórnarmeirihlutinn hefur hingað til ekki viljað hækka. Það munar um 25.000 kr. þegar lítið er í veskinu.

Í fjórða lagi leggjum við til tillögu sem ég mun fara fram á að atkvæði verði sérstaklega greidd um. Þó að stjórnarmeirihlutinn geti ekki fallist á að hækka þurfi atvinnuleysisbætur, sem er nú reyndar ótrúlegt, vona ég að þeir geti alla vega hugsað sér að hækka hlutfallið sem gengur til barnafjölskyldna. Eins og ég sagði áðan þá eru grunnatvinnuleysisbætur rúmar 289.000 kr. á mánuði og framfærsla með hverju barni er 4% af þeirri upphæð sem gefur rúmar 11.000 kr. á mánuði með hverju barni undir 18 ára aldri. Þannig að fólk á grunnatvinnuleysisbótum með fjögur börn á framfæri nær lágmarkslaunum sem eru 335.000 kr. á mánuði en þarf að framfleyta sér á fjárhæð sem er undir lágmarkslaunum þegar börnin eru þrjú eða færri. Þetta held ég að hver maður sjái að getur ekki gengið. Þetta er líka hófstillt hækkun. Ef við förum með viðmiðið í lögum um atvinnuleysistryggingar úr 4% upp í 6% þá gefur það 17.370 kr. með hverju barni þannig að hækkunin er ekki mjög mikil en þó munar um þá upphæð. Um þennan hluta verða atkvæði greidd sérstaklega þegar við afgreiðum bandorminn og ég vona að fólk taki vel í að huga sérstaklega að börnum þeirra sem misst hafa vinnuna.

Að lokum er síðasta breytingartillaga okkar í Samfylkingunni að heimilt verði að greiða atvinnuleysisbætur til þess sem stundar nám á tímabilinu 1. júní til 31. ágúst, þ.e. að námsmenn sem fá ekki vinnu fái atvinnuleysisbætur. Þetta er sama krafa og stúdentar sjálfir hafa lagt áherslu á. Við í Samfylkingunni sjáum að hún er nauðsynleg og tökum undir hana og vonum að meiri hlutinn muni samþykkja þá tillögu þegar við afgreiðum breytingartillögurnar.

Forseti. Að lokum hvetjum við í Samfylkingunni til að frumvarp um hækkun lífeyris til jafns við lægstu taxta lífskjarasamningsins verði samþykkt sem allra fyrst. Frumvarpið var eitt af forgangsmálum Samfylkingarinnar. Fyrir því var mælt í september sl. og hefur það verið í velferðarnefnd til meðferðar þannig að það eru hæg heimatökin. Það eru komnar umsagnir, það hefur verið umfjöllun í nefndinni og einfalt að afgreiða málið út úr nefnd og hér inn í þingsal til samþykktar.

Forseti. Ég hef þetta ekki lengra að þessu sinni.