150. löggjafarþing — 99. fundur,  6. maí 2020.

frekari aðgerðir til að mæta efnahagslegum áhrifum í kjölfar heimsfaraldurs kórónuveiru.

726. mál
[17:06]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Ég tek undir það. Nú veit ég ekki nákvæmlega hvernig danska fjármálaráðið vinnur en í þessu öllu saman hef ég saknað Þjóðhagsstofnunar, og það er ágætt að rifja það hér upp að í rannsóknarskýrslunni, sem var samin eftir hrunið, var talað um að það væri heppilegt að við ættum slíka stofnun og þingmannanefndin sem fjallaði um rannsóknarskýrsluna dró það sérstaklega fram að við ættum að setja slíka stofnun á fót og hún ætti að heyra undir Alþingi. Samfylkingarþingkonan Valgerður Bjarnadóttir flutti einmitt um það frumvarp sem fékk ekki hljómgrunn og við í Samfylkingunni gerðum það aftur á 146. löggjafarþingi. Það vill svo til að ég er búin að vera að hugsa svo mikið um þetta á sömu nótum og hv. þingmaður: Hvernig getum við lært af þessu? Hvað er það sem við þurfum, hvað er það sem Alþingi þarf við svona aðstæður? Við erum löggjafarvald, við erum fjárveitingavald og við þurfum að taka stórar ákvarðanir en við þurfum á því að halda að hafa yfirsýn og ef við ættum Þjóðhagsstofnun og ef við ættum — mér er alveg sama þó að það kallist eitthvað annað ef fólk er viðkvæmt fyrir því — eitthvað sem Alþingi hefði sér til halds og trausts sem myndi meta stöðuna tvisvar á ári eða svo og gefa okkur skýrslu og gæti unnið með fjármálaráði þegar fjármálaráðherra metur fjármálastefnu og fjármálaáætlanir. Auðvitað ætti slík stofnun að heyra undir Alþingi og eftir þetta allt saman er ég búin að ákveða það að leggja aftur fram þetta mál. Þá vona ég að hv. þingmaður verði með mér á því.