frekari aðgerðir til að mæta efnahagslegum áhrifum í kjölfar heimsfaraldurs kórónuveiru.
Herra forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þm. Óla Birni Kárasyni, formanni nefndarinnar, fyrir ágæta framsögu þar sem hann fór ágætlega yfir störf nefndarinnar og þær breytingar sem gerðar hafa verið á frumvarpinu. Ég vil segja að vinnan í nefndinni hefur að mörgu leyti verið til fyrirmyndar og menn hafa þar skipst á skoðunum og reynt að laga og bæta frumvarpið, og ég held að það hafi tekist. Ég held að við getum verið ánægð með það. Eins og fram kom í máli formanns nefndarinnar þá skrifa ég undir nefndarálitið sem ég er á með fyrirvara. Í þeim fyrirvara felst að ég geri breytingartillögur, og ég gerði nefndarmönnum grein fyrir því þannig að það kemur engum á óvart, um það sem ég tel að geti bætt frumvarpið, þ.e. nýtt ákvæði og eins breytingar á þeim ákvæðum sem var breytt í nefndinni eða ekki breytt. Þær breytingar eru allar til bóta en ég vil ganga lengra.
Ég held að í upphafi sé rétt að segja að það eru ekki tíðindi að staða okkar í efnahagsmálum er mjög erfið og óvissan er mikil. Þess vegna þarf í senn að grípa til aðgerða sem eru til skamms tíma og grípa hratt og örugglega inn í vandamál sem skapast strax og draga úr því tjóni sem fyrirtækin og fjölskyldurnar og efnahagskerfið okkar verður fyrir. Á sama tíma er gríðarlega mikilvægt að við tökum djarfar stefnumótandi ákvarðanir þar sem við horfum til framtíðar. Það er alveg nauðsynlegt og ég held að menn geti kannski sagt: Við þurfum núna að setja 80% af kraftinum í nútímann en við þurfum að setja a.m.k. 20% í framtíðina. Og framtíðin kemur. Okkar vandi er sá að efnahagslíf okkar er þrátt fyrir allt fábreytt. Okkur hefur illa tekist að skjóta styrkari stoðum undir efnahagslífið með fjölbreytni í atvinnulífinu. Þetta gerir það að verkum að þegar áföll verða, þegar við treystum á svona fá atriði, fáar greinar, þá verða sveiflurnar, áföllin meiri og stærri hér en tíðkast annars staðar og þau verða tíðari. Við höfum alltaf sagt við okkur þegar við lendum í svona áföllum og allir okkar ráðgjafar segja alltaf við okkur: Þið verðið að gera breytingar, þið verðið að búa til fyrirtæki og starfsemi í landinu sem byggir á fjölbreytni, hugviti, tækni sem þið getið flutt út til jafns við aðrar útflutningsafurðir. Við höfum lagt af stað í svona vegferðir en ekki tekist ætlunarverkið. Þess vegna leggjum við í Viðreisn gríðarlega mikla áherslu á nýsköpun. Það er vissulega gert í þessu frumvarpi og ekki skal lasta það sem vel er gert. En það þarf að ganga enn lengra ef við ætlum að gera raunverulegar breytingar til langs tíma. Þess vegna gerum við tillögur, breytingartillögur, um það að við veitum smærri nýsköpunarfyrirtækjum meiri aðstoð. Við hækkum stuðninginn sem þau fá í gegnum skattafslætti og við leggjum líka til að þakið sem er sett á þær fjárhæðir sem fyrirtæki geta fengið í slíkan afslátt verði hækkað. Í tillögum nefndarinnar núna er gert ráð fyrir að það verði 1.100 milljónir. Við teljum að það eigi að ganga lengra. Við erum samt hógvær og segjum að það eigi að hækka það í 1,5 milljarða.
Það sem er ekki síður mikilvægt í þessu öllu er að aðgerðir af þessu tagi verða að vera ótímabundnar. Nýsköpun er nefnilega langhlaup og krefst hugsunar langt fram í tímann. Það gengur ekki að ætla að örva nýsköpun með tímabundnum stuttum aðgerðum. Þó að þær séu ágætar í sjálfu sér þá renna þær ekki stoðum undir það að menn trúi því og treysti að við séum í alvöru að skapa umhverfi fyrir nýsköpun sem er fyrsta flokks. Þess vegna verður að ganga lengra og taka djarfar ákvarðanir í þeim efnum.
Eitt af því sem er lagt til hér og er nýmæli í frumvarpinu er breyting á tryggingagjaldi. Það versta sem getur hent samfélag okkar er að það atvinnuleysi sem nú er komið grafi um sig og verði langvarandi. Það er það versta sem getur komið fyrir okkur og við þurfum að spyrna gegn því með almennum róttækum aðgerðum. Þess vegna leggjum við í Viðreisn í fyrsta lagi til að ákvæði til hálfs árs taki til síðari hluta þessa árs og feli í sér að öll fyrirtæki greiði 75% af lögbundnu tryggingagjaldi. Þetta er vissulega almenn aðgerð, þetta er almenn innspýting en hún hefur það í för með sér að umsvifin í þjóðlífinu, í hagkerfinu, geta aukist. Hún dregur úr hættunni á því að fólki sé sagt upp og hún hvetur til þess að fólk sé ráðið hjá fyrirtækjum sem þó ganga vel. Það er auðvitað mjög mikilvægt að þeim fyrirtækjum sem gengur vel geti gengið enn betur og þau geti haft enn meiri umsvif og enn fleira starfsfólk og þetta er liður í því. Gert er ráð fyrir því að síðari hluti tillögunnar gildi til árs, fram á mitt næsta ár, og hann feli í sér að þau fyrirtæki sem ráða til sín fólk sem er fyrir atvinnulaust greiði á tímabilinu, sem er þá eitt ár, frá miðju þessu ári fram á mitt næsta ár, einungis 25% af tryggingagjaldi. Við teljum að með því móti verði tryggt — tryggt er kannski of sterkt orðað — eða að líkurnar aukist mjög verulega á því að það verði fleiri fyrirtæki sem ráði til sín fólk sem er atvinnulaust og veiti því þar með tekjur og öryggi.
Vissulega kostar leið af því tagi sitt en kostnaðurinn við það að fólk sé atvinnulaust, að breytingar verði á félagslegum högum fólks jafnvel til lengri tíma, er enn meiri. Þess vegna verða menn að vera djarfir. Menn verða að taka stórar ákvarðanir. Það sem er gott við aðgerð af þessu tagi er að hún er afar einföld. Hægt er að hrinda henni í framkvæmd fyrirvaralaust. Engu þarf að breyta í kerfunum, a.m.k. ekki við fyrri tillöguna. Varðandi seinni tillögu held ég að það sé afskaplega auðvelt að geta fundið út úr því hverja fyrirtæki ræður af atvinnuleysisskrá. Þetta er gegnsætt. Þetta er skjótvirkt og áhrifaríkt og ég held að það væri mikil gæfa ef við gætum stigið skref af því tagi.
Þetta eru þær tvær helstu tillögur sem við leggjum hér til um breytingar á þessu frumvarpi. Þær tengjast auðvitað fjáraukanum og öðrum aðgerðum sem þarf að ráðast í. Þar leggjum við nákvæmlega sömu áherslur; enn meiri innspýtingu í nýsköpunar- og þróunarmál, að berjast gegn atvinnuleysi, undirbúa með markvissum hætti framkvæmdir til margra næstu ára af öllu tagi þannig að hægt sé að taka til starfa hratt og vel og menn þurfi ekki að bíða eftir því að verkefnin séu tilbúin. Við eigum að eiga þau tilbúin og við þurfum að vinna að því. Í síðasta lagi vil ég nefna að við munum einnig leggja fram hugmyndir um það — sem tengist enn og aftur atvinnuleysi og því að auka og efla umsvif — að úrræði stjórnvalda um að leggja til umtalsvert fé til þess að opinberar stofnanir og ríkisfyrirtæki geti ráðið til sín starfsfólk, sem er gott og vel, nái líka til einkamarkaðarins þannig að fyrirtækin geti ráðið til sín námsmenn með stuðningi eins og ríkisstofnanirnar gera. Það er engu síður mikilvægt að fyrirtækin geti sinnt verkefnum sínum og að námsmenn fái vinnu fyrir utan að það að koma námsmanni í vinnu hjá einkafyrirtæki í stað ríkisstofnunar kostar ríkið einfaldlega helmingi minna í fjárútlátum. Þetta þarf að gera.
Enn og aftur: Við viljum að við ráðumst í djarfar og róttækar aðgerðir sem hafa áhrif strax og við viljum líka ráðast í djarfar aðgerðir sem hafa áhrif langt inn í framtíðina. Ég fullyrði að ef við tökum það alvarlega að stunda hér nýsköpun og rannsóknir mun íslenskt samfélag geta litið allt öðruvísi út eftir nokkur ár, áratug, áratugi. Það verður blómlegra og stöðugra og enn betra og það mun vera miklu betur varið og í stakk búið til að takast á við áföll af öllu tagi.