150. löggjafarþing — 99. fundur,  6. maí 2020.

frekari aðgerðir til að mæta efnahagslegum áhrifum í kjölfar heimsfaraldurs kórónuveiru.

726. mál
[17:42]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Virðulegur forseti. Ég vona að forseti taki því ekki illa ef ég byrja á því, degi of seint, að óska síðasta ræðumanni, hv. þm. Loga Einarssyni, til hamingju með 20 ára afmæli flokks hans fyrst ég náði ekki að gera það úr ræðustóli í gær. Ég get tekið undir það með virðulegum forseta að það var gaman að sjá hv. þingmann með bindi í gær og gaf deginum hátíðlegri blæ en ella. Þegar hv. þingmaður er svo nánast farinn að vitna í Lúther hér í ræðu — ef hann væri með bindi líka — fer að styttast í að Samfylkingin verði borgaralegri flokkur en Sjálfstæðisflokkurinn.

En ég hafði hins vegar gefið fyrirheit um að reyna að liðka fyrir öllum málum sem snúast um að takast á við þessa Covid-baráttu og þó að gömul dellumál ríkisstjórnarinnar séu farin að dúkka upp eitt af öðru dag eftir dag ætla ég að reyna að standa við það loforð hvað varðar Covid-málin og lágmarka þann tíma sem fer í þessa ræðu og byggja hana fyrst og fremst á athugasemd minni, fyrirvara við það frumvarp sem allir nefndarmenn í hv. efnahags- og viðskiptanefnd undirrituðu. En sá fyrirvari er nokkuð afdráttarlaus enda var að mínu mati tilefni til þess. Þrátt fyrir góða vinnu í nefndinni, eins og áður, var eitt og annað sem betur hefði mátt fara og nokkur atriði sem er alveg sérstök ástæða til að gera athugasemd við. En ef ég þá, með leyfi forseta, byggi á þessum fyrirvara og fer stuttlega yfir hann, þá byrjar hann á nokkrum almennum orðum:

„Aðgerðirnar sem mælt er fyrir um í frumvarpinu eru flestar af hinu góða og til þess fallnar að létta undir rekstri fyrirtækja og örva atvinnulíf þegar fram í sækir. Þá eru breytingartillögur nefndarinnar flestar til bóta. Þó er tilefni til að gera athugasemdir við ákveðin atriði. Hér verður imprað á nokkrum þeirra án þess að það sé tæmandi listi.“

Og ég byrja á frestun skattgreiðslna lögaðila sem var eitt þeirra atriða sem voru nefnd af allmörgum gestum nefndarinnar:

„Sú aðgerð sem mælt er fyrir um í a-lið 1. gr. frumvarpsins, sem heimilar fyrirtækjum að fresta skattgreiðslu vegna tekna síðasta árs og jafna á móti fyrirsjáanlegu tapi ársins í ár þegar það raungerist, er mikilvæg og þýðingarmikil fyrir mörg fyrirtæki. Í ákvæðinu er hins vegar sett 20 millj. kr. þak á þá skattgreiðslu sem heimilt er að fresta. Ljóst er að miklu máli, jafnvel úrslitamáli, gæti skipt fyrir mörg lífvænleg fyrirtæki að þakið yrði hækkað eða afnumið. Að sama skapi er ljóst að afnám þaksins myndi ekki skipta úrslitamáli fyrir ríkissjóð enda er eðli málsins samkvæmt um tekjuhlutlausa aðgerð fyrir ríkissjóð að ræða“ — eins og lagt er upp með hana, fyrir ríkissjóð — „til lengri tíma. Því er erfitt að skilja hvers vegna ákveðið er að sníða aðgerðinni svo þröngan stakk og draga þar með, að því er virðist að óþörfu, úr jákvæðum áhrifum hennar.“

Þetta var um frestun á skattgreiðslum lögaðila, enn eitt dæmi um að hægt hefði verið að taka meira mark á ábendingum gesta nefndarinnar eins og í umræðu um mál sem vörðuðu aðgerðapakka eitt án þess að ríkið þyrfti að kosta miklu til en þar virðist einhver pólitík þvælast fyrir mönnum. Næst sný ég mér að vanskilum í fyrirvaranum, með leyfi forseta:

„Alltítt er að fyrirtæki, sérstaklega í ferðaþjónustu, lendi í tímabundnum vanskilum vegna óvenju sveiflukennds starfsumhverfis. Mörg ferðaþjónustufyrirtæki lenda í vanskilum í byrjun árs en ná sér svo á strik þegar líður á árið og halda áfram að veita fólki atvinnu og skapa verðmæti. Að mati undirritaðs gengur það gegn markmiðum frumvarpsins að refsa slíkum fyrirtækjum sérstaklega og koma í veg fyrir að þau fái tækifæri til að komast í gegnum það óvenjulega ástand sem nú ríkir, ástand sem hófst á einstaklega óheppilegum tíma fyrir fyrirtæki í ferðaþjónustu.“

Næst er vikið að markmiðum um eflingu nýsköpunar sem eru mjög jákvæð á ýmsan hátt og tóku breytingum til bóta í störfum nefndarinnar undir forystu hv. formanns hennar, en þó segir í fyrirvara um þetta mál, með leyfi forseta:

„Jákvætt skref er stigið með því að auka við skattaívilnanir samkvæmt lögum um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki. Mikilvægt er að hækka bæði hlutfall frádráttar frá skatti vegna fjárfestinga í rannsóknum og þróun sem og að hækka fjárhæðarmörk skattfrádráttar. Fagna ber breytingartillögu nefndarinnar sem snýr að þessu. Hins vegar felst skammsýni í því að gildistími ákvæðanna er aðeins til tveggja ára og nær auk þess ekki til að auka frádráttarheimildir frá tekjuskatti í ár vegna fjárfestinga á síðasta ári. Rétt hefði verið að útvíkka gildistíma ákvæðanna í báða enda, einkum og sér í lagi í seinni endann eða gera ákvæðin ótímabundin. Ljóst er að þannig hefði mátt fá til landsins arðbær framtíðarverkefni þeirra sem sæju hag sinn í því að geta treyst á að fyrirkomulag skattívilnana héldist óbreytt um lengra skeið en til tveggja ára. Svör um að líklega verði gildistíminn framlengdur þegar þar að kemur duga skammt enda ljóst að fyrirsjáanleikinn skiptir öllu máli þegar verkefnum er valinn staður út frá gildandi regluumhverfi.“

Og nú geri ég mér grein fyrir því, herra forseti, að hér er um að ræða aðgerðir til að bregðast við ástandinu eins og það er núna. En það var hins vegar kynnt af hálfu ríkisstjórnarinnar sem framtíðarráðstöfun um leið. Öllum má vera ljóst að þegar ríkir neyðarástand er fyrsta forgangsmálið að bregðast við því og reyna að lágmarka frekara tjón. En vilji menn, eins og skynsamlegt er, á sama tíma ráðast í aðgerðir sem eiga að ýta undir uppbyggingu til lengri tíma þá þurfa þær aðgerðir að endurspegla þau áform. Og hvað varðar stuðning við nýsköpunarfyrirtæki þá þarf einmitt meiri langtímasýn en birtist í tillögum ríkisstjórnarinnar og afgreiðslu nefndarinnar, þó að ég ítreki að breytingar í nefndarvinnu hafi verið til bóta.

Næst stuttlega um endurgreiðslu virðisaukaskatts o.fl. Þetta hefur töluvert verið rætt, bæði í tengslum við fyrstu aðgerðir stjórnvalda og svo þennan seinni pakka og menn vísa til verkefnisins Allir vinna sem ráðist var í fyrir rúmum áratug og snerist um endurgreiðslu virðisaukaskatts en í fyrirvara segir:

„Telji stjórnvöld gagnsemi endurgreiðslu virðisaukaskatts jafnmikla og lagt er til grundvallar, og tekið skal undir, hefði verið æskilegt að útvíkka slíkar aðgerðir sem og að ráðast í aðrar efnahagslega hvetjandi skattkerfisbreytingar.“

Þá um það sem veldur mér kannski einna mestum áhyggjum í þessu máli öllu, herra forseti, styrki til einkarekinna fjölmiðla. Áfram heldur lesturinn, með leyfi forseta:

„Að mati undirritaðs er afgreiðsla þess þáttar málsins sem snýr að fjölmiðlum fráleit og verulegum vafa undirorpið að hún geti talist til eðlilegra stjórnsýsluhátta. Mikilvægt er að veita einkareknum fjölmiðlum stuðning og jafna stöðu þeirra gagnvart ríkismiðlinum.“

Um þetta er sem betur fer að nást aukin samstaða, svo er það spurning hvernig það er gert. Þá held ég áfram lestrinum:

„Það að ráðherra fjölmiðlamála skuli veitt heimild til að útdeila fjármagni til fjölmiðla nánast að geðþótta gengur gegn grundvallarviðmiðum um fjárreiður ríkisins og valdheimildir ráðherra. Annmarkar afgreiðslunnar eru slíkir að efast má um að forsvaranlegt sé að skrifa undir álitið. Viðbætur þær sem kynntar eru í álitinu eru síður en svo til þess fallnar að lagfæra málið. Hvað varðar ákvæði um fjölmiðla í vanskilum gildir það sem fjallað var um að ofan“ — og ég rakti hér áðan. — „Kvöð um hámarksstuðning gengur gegn markmiðinu um að vernda störf og vandaða „framleiðslu“ fjölmiðla. Heimild til ráðherra um að líta til fjölbreytileika fjölmiðla er algjörlega óútskýrð og getur orðið til þess að ráðherra telji sér heimilt að verðlauna þá fjölmiðla sem kunna að vera ráðherra að skapi umfram aðra með vísan til fjölbreytileika. Í ljósi þess að Miðflokkurinn hefur heitið því að liðka fyrir öllum málum sem kunni að vera til þess fallin að bregðast við efnahagslegum áhrifum heimsfaraldursins undirrita ég þó álitið með fyrrgreindum fyrirvörum og ítreka andstöðu við þá misnotkun valds sem felst í því að fela ráðherra geðþóttavald í ákvörðunum um stuðning við fjölmiðla.“

Og þá að niðurstöðunni, herra forseti:

„Þótt margt hefði betur mátt fara í tillögum ríkisstjórnarinnar hefur vinna nefndarinnar almennt verið til bóta. Þingflokkur Miðflokksins hefði viljað fara aðrar leiðir eins og kynnt hefur verið. Þau úrræði og fleiri munu birtast í öðrum þingmálum enda mikilvægt að tefja ekki framgang mála sem gætu verið til þess fallin að bregðast við efnahagsáhrifum heimsfaraldursins. Að því sögðu styður undirritaður frumvarpið en með afdráttarlausum fyrirvara.“

Og þá læt ég þetta nægja, herra forseti, enda vil ég liðka fyrir því að málið fái framgang hér á þinginu með fyrrnefndum fyrirvörum.