frekari aðgerðir til að mæta efnahagslegum áhrifum í kjölfar heimsfaraldurs kórónuveiru.
Herra forseti. Ég mun í ræðu minni reyna að halda mig við rétt þingmál, þ.e. þingtungumál, eftir því sem fara vill. Ég ákvað að taka til máls af nokkrum ástæðum, m.a. til að fara aðeins yfir hvernig mér hefur þótt vinnan í nefndinni. Mér þykir sú vinna hafa verið til fyrirmyndar og er ástæða til að þakka allri nefndinni og öllum nefndarmönnum sem koma að málinu og gildir þá einu hvort þeir eru úr stjórn eða stjórnarandstöðu. Starfinu hefur verið stýrt undir styrkri forystu formanns nefndarinnar, hv. þm. Óla Björns Kárasonar. Formaður fór yfir breytingartillögurnar að nokkru leyti og það eina sem ég ætla að segja um þær er að auðvitað styð ég þær. Það er hins vegar mikilvægt að benda á, sérstaklega í ljósi orða sem fallið hafa fyrr í dag um með hvaða hætti þessar aðgerðir snúi að framtíðinni, að það er einmitt gert með sérstökum stuðningi við nýsköpun, eins og kemur fram í tillögunum. Með auknum stuðningi í breytingartillögum nefndarinnar er einmitt verið að stuðla að því, eins og hv. þm. Oddný G. Harðardóttir kom inn á í ræðu sinni fyrr í dag, og ýta undir að við náum að skjóta frekari stoðum undir íslenskt samfélag með því að styðja enn betur við nýsköpun og þá sérstaklega rannsóknir og þróun á því sviði. Þetta skiptir gríðarlega miklu máli.
Það hefur líka verið rætt hér í dag um samhengið milli stuðnings við heimili og fyrirtæki og hvernig það hefur áhrif á þau störf sem standa til boða í samfélaginu. Auðvitað hangir þetta allt svolítið saman, og raunar mjög mikið. Ég segi fyrir mitt leyti að það að vernda störf, að tryggja störf sem hægt er að forða frá því að tapast, er a.m.k. óbeinn ef ekki beinn stuðningur við heimilin í landinu. Það tryggir þá a.m.k. framfærslu heimilanna sem þar eru undir.
Hv. þingmenn þekkja það náttúrlega að við erum ekki að tala hér í fyrsta sinn um aðgerðir eða aðgerðapakka og ef að líkum lætur þá er ekki rekinn neinn endahnútur á þær aðgerðir sem við munum þurfa að grípa til á einhverjum tímapunkti vegna heimsfaraldurs Covid-19. Raunar hafa margir þingmenn og margir hæstv. ráðherrar ítrekað komið inn á það að ástandið er svo kvikt, hreyfing og óvissa svo mikil, að ekki er óeðlilegt að grípa þurfi til annarra aðgerða. Eins og hv. þingmenn, sumir hverjir, hafa nefnt í dag eigum við til að mynda strax á mánudaginn von á nýju frumvarpi, m.a. vegna hlutabótaleiðarinnar. Þar er, eftir því sem ég best veit, verið að lengja í þeirri leið en þegar faraldurinn var að fara af stað gátum við ekki almennilega vitað hvort hann yrði í þrjá mánuði, sex mánuði, níu mánuði eða hvað. Nú erum við að ýta þeim dagsetningum aftar á árið vegna þess að við teljum að það sé algerlega komið í ljós að þess muni þurfa. Það kann svo sannarlega að fara svo að við þurfum að gera þetta í meira mæli og við fleiri úrræði en bara þetta.
Nokkuð hefur verið rætt hér í dag, og raunar líka í samfélaginu, um þau atriði sem snúa að lágskattasvæðum og skattaskjólum. Ég geri mér fulla grein fyrir því að í íslenskum lögum er það þannig að menn mega fara með peninga úr landi. Menn mega standa í atvinnustarfsemi erlendis og menn mega eiga í félögum erlendis. Það er ekki bannað að íslenskum lögum og það er meira að segja heimilt að flytja fjármagn úr landi og í seinni tíð höfum við í raun ekki verið í ástandi þar sem það var óheimilt nema í hruninu. Það hangir hins vegar á þeirri spýtu að þeir sem þetta gera þurfa að fara að íslenskum lögum og þurfa að greiða skatta af þeim peningum sem þeir eru að flytja úr landi. Þeir þurfa að greiða skatta af tekjum sem þeir afla í öðrum löndum hér á Íslandi o.s.frv. Skattalögin eru þannig séð tiltölulega skýr hvað þetta varðar. Auðvitað getur verið ágreiningur um hvort þau séu nógu skýr en a.m.k. er ansi mikilvægt að hafa þetta í huga. Þess vegna treysti ég því, sem sérfræðingar hafa sagt á fundum hv. nefndar, að það sé kannski fræðilegur möguleiki að einhverjir aðilar geti sniðgengið reglurnar en ég lít þannig á að þeir séu þá væntanlega að fara á svig við lög og þar með muni önnur ákvæði laganna og þessara ákvæða sem við erum að samþykkja eiga við. Í niðurlagi málsgreinarinnar um frestun skattgreiðslna lögaðila kemur einmitt fram eftirfarandi:
„Ákvæðunum er því ætlað að taka til lögaðila sem eru skattskyldir hér á landi en ekki lögaðila í skattaskjólum.“
Þetta kann að virka léttvægt en þarna er einmitt átt við að með þeim ívilnandi ákvæðum sem við erum að samþykkja, með breytingum á lögunum sem koma fram í þessum bandormi, erum við að undanskilja þá aðila sem eru í skattaskjólum. Ég held að það sé býsna mikilvægt að það komi fram.
Ég ítreka aftur, herra forseti, að komi til frekari aðgerða þá er a.m.k. sá sem hér stendur tilbúinn til að taka þátt í þeirri vinnu áfram. Ég geri ráð fyrir að hv. efnahags- og viðskiptanefnd sé öll tilbúin til þess, enda hefur ekkert skort á góða samvinnu og samstarf í nefndinni sem sést m.a. á því að nú erum við að afgreiða annan stóran aðgerðapakka úr nefndinni með einu nefndaráliti en eðli málsins samkvæmt með mismunandi sjónarmiðum eftir því hvorum megin stjórnarmeirihlutans menn standa og einnig eðli málsins samkvæmt út frá þeirri pólitík sem þeir standa fyrir á hverjum tíma, og það er fullkomlega eðlilegt. Það er nefndarmönnum til mikils hróss hve mikið þeir hafa lagt sig fram um að ná sameiginlegum niðurstöðum og leggja saman í púkkið til að ná breytingartillögum fram á sem bestan hátt. Það hefur verið gert og því ber að fagna.