frekari aðgerðir til að mæta efnahagslegum áhrifum í kjölfar heimsfaraldurs kórónuveiru.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Ég er algjörlega sammála því, enda höfum við í Samfylkingunni sýnt það að við höfum stutt þau frumvörp og þær aðgerðir sem hér hafa farið í gegnum þingið til þess að styðja fyrirtækin og vinna gegn atvinnuleysi. Við þurfum auðvitað að gera það. En við getum ekki skilið heimilin eftir. Þó að þarna sé vissulega samspil á milli verðum við að vera raunsæ og það munu ekki öll fyrirtæki rísa upp á lappirnar þegar faraldurinn er genginn yfir og ráða til sín fólk. Við munum því miður glíma við atvinnuleysi lengur en við viljum sjá og meira atvinnuleysi. Atvinnuleysisbætur eru mjög lágar. Grunnatvinnuleysisbætur eru rétt rúmlega 289.000 kr. Greiðsla með hverju barni er rúmar 11.000 kr. Tekjutengda hámarkið er 456.000 kr. Þetta eru allt mjög lágar upphæðir. Ég veit að stjórnarliðar, hv. stjórnarþingmenn, hafa sagt: Nei, við þurfum ekkert að hækka atvinnuleysisbætur vegna þess að við hækkuðum þær í fyrra. Það er alveg rétt, enda hafði dregið óskaplega mikið í sundur og munurinn á lágmarkslaunum og grunnatvinnuleysisbótum var kominn upp í rúmar 70.000 kr. Fór með breytingunni í fyrra niður í 37.000, en nú dregur aftur í sundur og munurinn er orðinn rúmlega 45.000 kr.
Ég vil spyrja hv. þingmann hvort hann sé ekki sammála mér og okkur í Samfylkingunni að það þurfi strax að hækka atvinnuleysisbæturnar og mæta fólki áður en til mikilla vandræða horfi.