150. löggjafarþing — 99. fundur,  6. maí 2020.

frekari aðgerðir til að mæta efnahagslegum áhrifum í kjölfar heimsfaraldurs kórónuveiru.

726. mál
[18:41]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Þessi svör hv. þingmanns eru mér vissulega vonbrigði. Ég vil þá spyrja hvort hann geti ekki hugsað sér núna eða a.m.k. á næstu vikum að hækka prósentutöluna sem gefur framfærslu með hverju barni. Er ekki hægt að samþykkja þá tillögu? Hún mun gefa rétt rúmar 5.000 kr. aukalega með hverju barni, fara úr rúmum 11.000 kr. upp í 17.000 eða svo. Er ekki a.m.k. hægt að horfa til barna þeirra sem misst hafa vinnuna og eru nú þegar komnir á strípaðar atvinnuleysisbætur? Af hverju má ekki gera það strax? Verðum við að láta það fólk sem fyrst dettur á grunnatvinnuleysisbæturnar svelta? Vill hv. þingmaður safna í sarpinn og koma ekki með aðstoð fyrr en svo og svo margir lifa undir fátæktarmörkum?

Annað sem hægt væri að gera væri að breyta viðmiðum fyrir barnabætur og láta þær barnabætur sem eru greiddar út 1. júní miðast við tekjur 1. apríl, en ekki meðaltekjur fyrir árið 2019 sem gefur enga mynd af því hvernig staðan er hjá barnafjölskyldum í landinu. Getur hv. þingmaður ekki tekið undir það að a.m.k. sé hægt að hækka framlög með börnum þeirra sem misst hafa vinnuna eða hjá þeim þar sem tekjufall hefur orðið mikið vegna ástandsins?