150. löggjafarþing — 99. fundur,  6. maí 2020.

frekari aðgerðir til að mæta efnahagslegum áhrifum í kjölfar heimsfaraldurs kórónuveiru.

726. mál
[18:49]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið og tek það alveg gott og gilt, það er alltaf einhver áherslumunur á milli þingmanna og stjórnmálamanna almennt. Vel athugað hjá hv. þingmanni hvað varðar að hækka þakið. Ég er sammála honum um að það komi til með að skipta verulegu máli.

Ég verð að viðurkenna að þegar ég velti fyrir mér þessum aðgerðum og hlusta á ræður hér þarf stundum að minna mig á að þetta snýst allt um að skapa störf. Ég er hugfanginn af því að búa til nýjan iðnað, nýja vettvanga sem sjálfkrafa skapa störf. Ég er af gamla skólanum að því leyti að ég sé ekki alveg tilganginn í því að skapa störf nema þau búi til einhver verðmæti fyrir samfélagið. Þess vegna finnst mér aðalatriði að búa til vettvang þar sem verðmæti verða til. Og í þessum aðstæðum sér í lagi lít ég svo á að nýsköpun sé lykillinn að því vegna þess að hún er í raun og veru það eina sem blasir við þegar kemur að því að búa til nýjan máttarstólpa fyrir íslenskan efnahag, alla vega sem við getum séð fyrir núna. (Forseti hringir.) Að því sögðu er auðvitað ekki ljóst fyrir fram hvaða iðnaður nákvæmlega muni njóta mestra tækifæra á komandi árum, sér í lagi á þessu (Forseti hringir.) óvissustigi. Ég biðst forláts, virðulegi forseti, á tímanum en hef svo sem ekki aðra spurningu, langaði bara að koma þessum sjónarmiðum að.