frekari aðgerðir til að mæta efnahagslegum áhrifum í kjölfar heimsfaraldurs kórónuveiru.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Já, ég tek undir með þingmanninum um að mikilvægt er að búa til nýjar stoðir. Einmitt þess vegna ákvað nefndin að bregðast við ákalli frá samtökum sem mig minnir að heiti Samtök leikjaframleiðenda eða tölvuleikjaframleiðenda, en ábending kom frá þeim um að það væri gagnlegt og gæti hjálpað litlum aðilum, sem eru að koma undir sig fótunum einmitt í hugbúnaðarframleiðslu, ef svokallaðir englafjárfestar fengju meiri ívilnun en þeir hafa fengið hingað til vegna fjárfestinga í þeim iðnaði. Þetta er einmitt mjög mikilvægt vegna þess að ég held að þetta geti verið fræin sem muni verða til þess að myndarleg tré vaxi í kringum þann iðnað.