frekari aðgerðir til að mæta efnahagslegum áhrifum í kjölfar heimsfaraldurs kórónuveiru.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Andrési Inga Jónssyni fyrir andsvarið og það gleður mig ósegjanlega að þingmaðurinn fylgist með því sem ég segi og skrifa. Ég hef talað fyrir því að við reynum að fara þá leið að gefa út skuldabréf og ég hef raunar nefnt það líka, eins og þingmaðurinn kom inn á, að þau mættu gjarnan vera græn og vera með grænum áherslum. Það er ekki í þessum pakka, þingmaðurinn er glöggur að átta sig á því en bendir einmitt á þetta með lífeyrissjóðina, það ákvæði. Þingmaðurinn spyr hvort einhver umræða hafi farið fram um það í nefndinni hvort þarna ætti að vera sérstök áhersla á græna fjárfestingu. Ég held að óhætt sé að segja að umræða hafi farið fram í nefndinni um það. Þó að ekki hafi verið lent akkúrat á því að setja það sem skilyrði þá var það aðeins rætt í nefndinni.
Varðandi það sem þingmaðurinn spurði um, hvað slagkraftur lífeyrissjóðanna gæti verið mikill í þessu, ef við ímyndum okkur að allir lífeyrissjóðirnir myndu fullnýta þá heimild sem kemur fram í lögunum eða frumvarpinu þá gætu það verið 50 milljarðar á ári. Ég er ekki svo bjartsýnn að halda að það verði þannig að allir lífeyrissjóðir muni fullnýta allar sínar heimildir. En það segir okkur hins vegar eins og þingmaðurinn er, að ég tel, að benda á að í lífeyrissjóðunum er fólginn gríðarlegur kraftur sem einmitt á tímum eins og þessum er hægt að nota til að hjálpa okkur að bregðast við vandanum og komast upp úr erfiðleikunum.