frekari aðgerðir til að mæta efnahagslegum áhrifum í kjölfar heimsfaraldurs kórónuveiru.
Virðulegs forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Fjármálaráð er sjálfstætt í störfum sínum þannig að ég tel að þinginu sé vel kleift að biðja fjármálaráð um að fara yfir þessa pakka og gefa álit sitt á þeim. Því er í sjálfsvald sett hvort það verður við því eða ekki. Það þarf að bjóða því að gera það. Mér finnst það svolítið mikilvægt.
Mér finnst líka mikilvægt að ríkisstjórnin álíti að akkur sé í því að fá óháða og sjálfstæða úttekt á þeim aðgerðum sem hún beitir. Mér finnst það mjög mikilvægt vegna þess að ég hef smááhyggjur og óska eftir viðbrögðum frá hv. þingmanni við áhyggjum mínum um hvort hætta sé á eins konar bergmálshelli þegar svona rosalega mikil vinna fer fram í frekar þröngum hópi, að því er virðist, ráðuneytisstjóra, ráðherra og nokkurra sérfræðinga í ráðuneytunum. Þá vantar kannski fjölbreytni og yfirsýn annars staðar frá.
Deilir hv. þingmaður þessum áhyggjum með mér? Ég vísa í að hæstv. forsætisráðherra lýsti þessum vinnubrögðum fyrir mér og kom í ljós að þarna eru aðallega ráðuneytisstjórar og ráðherrar — ekki margir ráðherrar — og nokkrir ráðuneytisstarfsmenn. Það virðist ekki vera mikil utanaðkomandi ráðgjöf eða aðstoð.