150. löggjafarþing — 99. fundur,  6. maí 2020.

frekari aðgerðir til að mæta efnahagslegum áhrifum í kjölfar heimsfaraldurs kórónuveiru.

726. mál
[19:27]
Horfa

Willum Þór Þórsson (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Helga Hrafni Gunnarssyni fyrir mjög góðar spurningar. Þetta er allt hárrétt, það ætti akkúrat núna að lækka skatta af því að verkefnið er virkni, virkni, virkni. Nýsköpun er góð og ég fór yfir það í ræðu að við erum með úrræði, við erum að setja 4,2 milljarða í starfsúrræði fyrir atvinnuleitendur og fyrir námsmenn og sumarnám fyrir námsmenn. Þetta er allt mjög jákvætt og við eigum að gera þetta.

Ég hygg að ákveðinn vandi sé að birtast okkur í þessum aðgerðum. Við erum búin að fara í miklar aðgerðir við að fresta gjöldum fyrirtækja. Tekjufallið fyrir ríkissjóð, bæði í minnkandi eftirspurn og í þessu frestunum öllum, er svo gríðarlegt að það er ekki svigrúm, menn þurfa að sjá fram úr því. Ég get ímyndað mér fræðingana að ræða þessa hluti: Hvað eigum við að gera? Hvernig eigum við að bregðast við? Hvernig eigum við að hjálpa heimilunum og fyrirtækjunum að komast í gegnum þetta tímabundna ástand? Það þarf að sjá fram úr því og í þessu gríðarlega tekjufalli fara menn varlega áður en þeir fara raunverulega að lækka skattana. Ég held að það sé það sem er að gerast. En þegar við horfum á það hvað við eigum að gera þegar atvinnuleysið fer að raungerast, af því að nú erum við farin að greiða laun í uppsagnarfresti og þá fer atvinnuleysið að raungerast, þá sjáum við að við verðum að fara í svona aðgerðir. Það verður snúið vegna þess að samhliða, talandi um sjálfbærni og varfærni, mun taka tíma að ná aftur jafnvægi milli gjalda og tekna. Útgjaldastigið er orðið nokkuð hátt og í velferðarkerfinu og heilbrigðiskerfinu er kostnaðurinn bara að aukast og vægi hans í heildarmyndinni.