frekari aðgerðir til að mæta efnahagslegum áhrifum í kjölfar heimsfaraldurs kórónuveiru.
Hæstv. forseti. Frestunin gerði miklu meira en að lækka skattstofn, alveg eins og hlutabótaleiðin gerði miklu meira en að t.d. lækka tryggingagjald. Það varð að bregðast hratt við þannig að nánast tekjulaus fyrirtæki eða með mikið tekjufall þyrftu hreinlega ekki að greiða neitt. Viðbrögðin voru því hárrétt. En við verðum mjög fljótlega að fara að skoða alla gjaldstofna og hvert svigrúmið er og horfa til þess að örva eftirspurnina. Það þýðir að við verðum að sjá hvar við getum stillt af svona gjaldstofna, lækkað tryggingagjald, lækkað skatta, lækkað skatta á einstaklinga um leið og við sjáum fram á að það sé hægt og það örvi eftirspurnina það mikið að það treysti skatta ríkisins og við náum jafnvægi þannig. Þannig horfi ég á það og það er bara á næstu mánuðum. En þetta verður verkefni næstu ára. (Forseti hringir.) Ein sviðsmyndin segir okkur að við verðum ekki búin að ná verðmætasköpuninni á hvern mann fyrr en 2027. Við verðum að horfa á samhengið í þessu.