frekari aðgerðir til að mæta efnahagslegum áhrifum í kjölfar heimsfaraldurs kórónuveiru.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Birgi Þórarinssyni fyrir ræðuna. Hann talaði um að koma fyrirtækjum í öruggt skjól og get ég vel tekið undir þau sjónarmið. En ég velti fyrir mér: Hvað með að koma einstaklingum og fjölskyldum í öruggt skjól? Við vitum að fólk óttast um afkomu sína, skiljanlega. Fólk er að missa tekjur og lífsviðurværi sitt. Af þeim sökum hafa skiljanlega margir áhyggjur af því að geta mögulega misst heimili sín. Þess vegna vildi ég nefna frumvarp sem þingflokkur Pírata hefur lagt fram um frestun á nauðungarsölum, sem gerir ráð fyrir því að nauðungarsölur á heimilum fólks verði ekki framkvæmdar næsta árið meðan við erum að komast í skjól frá þessari heilsufarsvá og meðan efnahagsástandið er eins og það er.
Ég velti því upp, alla vega í fyrra andsvari, hvort hv. þingmaður gæti hugsað sér að styðja það mál, hvort honum finnist ekki tilefni til að verja heimilin og tryggja að ekki verði framkvæmdar nauðungarsölur á heimilum fólks einmitt núna þegar við þurfum öll að standa saman og varðveita lífskjör heimilanna, fólksins í landinu. Hvort ekki sé rétt a.m.k. að fresta nauðungarsölum út árið og vernda þar með friðhelgi heimila fólksins í landinu.