frekari aðgerðir til að mæta efnahagslegum áhrifum í kjölfar heimsfaraldurs kórónuveiru.
Virðulegur forseti. Ég hef ekki miklu að mótmæla í andsvari hv. þingmanns. Hvað sem okkur finnst um skyldu samfélagsins til að bjóða upp á atvinnuleysisbætur fyrir fólk sem missir vinnuna myndi ég færa rök fyrir því að það væri skynsamlegt fyrir samfélagið að bjóða upp á þann kost. Ég er ofboðslega feginn því að búa í samfélagi þar sem það er ekki lengur róttæk hugmynd að bjóða upp á atvinnuleysisbætur en sú var tíðin að svo var. Almannatryggingar þóttu líka mjög róttæk hugmynd á sínum tíma og félagslegu kerfin sem við tökum sem sjálfsögðum hlut, alla vega mín kynslóð, voru öll róttækar hugmyndir á sínum tíma og þóttu algjörlega út úr kortinu miðað við hve mikið þau myndu kosta og hve ægilega erfitt þetta yrði allt saman, líka það að takmarka vinnutímann við átta tíma á dag. Það var fullt af dómsdagsspám um að hagkerfið gæti ekki lifað það af. Eins og oft er með slíkar dómsdagsspár, virðulegur forseti, var það rugl eins og við þekkjum.
Mér hlýnar við tilhugsunina um breytingartillögur hv. þm. Oddnýjar G. Harðardóttur, þær eru góðar, eins og ég útskýrði í stuttu máli áðan. Þær eru tiltölulega sjálfsagðar, þær eru ekki róttækar. Það stendur enginn hér í pontu og segir að þetta sé ekki hægt, að þetta sé óraunhæft, að þetta sé svo galið, eins og fólk myndi kannski segja um hugmyndina um borgaralaun, og ég myndi skilja þá orðræðu betur. En ég er mjög feginn því að hægt sé að bregðast við með þessum hætti, að enginn raunverulegur ágreiningur, svo að mark sé á takandi, sé í samfélaginu um ágæti atvinnuleysisbóta og annarra félagslegra kerfa sem við tökum sem sjálfsögðum hlut til að hjálpa samfélaginu að halda áfram eftir áföll. Það er ekki bara skylda okkar, heldur skynsamlegt út frá hagsmunum samfélagsins í heild. Það þarf enga meðaumkun til þess, það þarf bara að hugsa málið til enda. (Gripið fram í: Engin geimvísindi.) Engin geimvísindi.