150. löggjafarþing — 99. fundur,  6. maí 2020.

frekari aðgerðir til að mæta efnahagslegum áhrifum í kjölfar heimsfaraldurs kórónuveiru.

726. mál
[20:39]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M):

Hæstv. forseti. Þessi umræða hér í dag hefur verið mjög merkileg. Ef ég ætti að minnast á eitt andartak sem stendur upp úr í mínum huga er það þegar formaður hins 20 ára og eins dags gamla flokks Samfylkingarinnar lýsti því yfir að í hefðbundnum landbúnaðarafurðum ættum við auðæfi. Mér hlýnaði um hjarta þegar ég heyrði það. En ég hef heillast af mörgum ræðum sem ég hef heyrt í umræðunni í dag. Ég var t.d. mjög ánægður með ræðu hv. þm. Helga Hrafns Gunnarssonar sem hann flutti áðan vegna þess að ég get tekið undir mjög margt af því sem hann sagði og farið aðeins yfir. Ég var líka mjög ánægður í gær þegar hv. þm. Rósa Björk Brynjólfsdóttir, sem því miður er búin að yfirgefa salinn, flutti tveggja mínútna ræðu þar sem hún sagði grænt svo oft að mér datt í hug það sem Tómas sagði; „að jafnvel gamlir símastaurar syngja / í sólskininu og verða grænir aftur“, með leyfi forseta. Það sló mig mjög vel.

Það sem ég ætlaði að færa í orð núna er að það sem hv. þm. Helgi Hrafn Gunnarsson sagði áðan um tæknina og nýsköpunina og það sem hv. þm. Rósa Björk Brynjólfsdóttir sagði í gær um grænar leiðir getum við allt samtvinnað því sem við eigum núna. Við hugsum í fyrsta lagi í bráð og í öðru lagi í lengd. Ef við hugsum í bráð: Hvað ætlum við að gera? Hvað þurfum við að gera? Við erum með 50.000 manns eða fleiri atvinnulausa. Hvað er það stærsta eina sem við getum gert til þess að vinna þau störf til baka að einhverju leyti? Væntanlega að hefja flugsamgöngur aftur og verja flugsamgöngur til Íslands. Auðvitað þurfum við að fara varlega þegar sá tími kemur. En það er bráðnauðsynlegt að þessi tími komi.

Ég gladdist mjög í gær eða líklega í fyrradag þegar ég heyrði fyrrverandi forseta lýðveldisins lýsa því að hann teldi að hingað myndi leita fólk sem væri að forðast Covid-veiruna. Ég hygg að það sé alveg hárrétt hjá honum. Þess vegna hefur mér dottið í hug að þegar við tryggjum að flugsamgöngur verði til og frá landinu held ég að eitt af tækifærunum sé að beina einhverjum hluta flugsins að Egilsstöðum og Akureyri, ekki endilega í þeirri röð. Ég er alveg sannfærður um það — hingað í salinn er mætt hv. þm. Rósa Björk Brynjólfsdóttir, sem ég var einmitt að hæla hér áðan, og ég gleðst yfir því. Ég er sannfærður um að hingað mun leita fólk sem er að forðast veiruna. Það vill þannig til að í heimspressunni undanfarið hefur Ísland verið sett á stall með einhverjum tveim, þrem öðrum þjóðum sem dæmi um hvernig hægt er að vinna bug á þessari veiru á ákveðinn, skilvirkan og skipulagðan hátt á vísindalegum grundvelli. Ég er sannfærður um að úti í heimi er fullt af fólki sem bíður eftir því að komast í umhverfi sem það telur öruggt, og við teljum að okkar umhverfi sé öruggt, með þeim fyrirvara að árið 1918 var það seinni bylgjan sem drap fólk, það var ekki sú fyrri heldur sú seinni og þá fóru 510 íbúar í Reykjavík á þremur til sex vikum, ég man ekki alveg tímabilið. Þá voru íbúar í borginni 45.000 eða þar um bil. Auðvitað þurfum við að fara varlega. En þetta er það sem við þurfum að gera í bráð.

Ég hef talað um það áður að ég hef saknað þess í tillögum ríkisstjórnarflokkanna, sem á margan hátt hafa verið góðar, að þær eru ekki mjög djarfar margar. Þær eru ekki framsæknar. Auðvitað stöndum við öll í sama pollinum núna og vonum að ekki fari vatn upp fyrir stígvélin, en akkúrat núna eigum við að hugsa um það hvað við ætlum að gera næst og þarnæst. Þá kemur einmitt þetta sem var svo innblásið hjá hv. þm. Helga Hrafni Gunnarssyni áðan og hjá hv. þm. Rósu Björk Brynjólfsdóttur í gær: Við getum sameinað grænt og tækni og nýsköpun með því sem við eigum. Hvað á ég við? Meðal annars eldi á landi, fiskeldi á landi. Hvernig? Ekki bara lax, við erum leiðandi í bleikjueldi, við getum gert meira af því. Fyrir nokkrum árum stakk ég upp á því að menn ættu að rækta styrju á Íslandi svo við gætum búið til alvörukavíar. Menn horfðu á mig vorkunnaraugum og héldu að það væru ekki allir heima. En nú er hafið tilraunaeldi á styrju á Reykjanesi. Styrjan er orðin um sex ára gömul og vantar tvö ár upp á að hrygna. Þetta er hægt. Og af því að þetta er hægt þá spurði ég fiskeldismann, sem ég hitti hér í Alþingishúsinu í fyrra, hvort hann teldi að við gætum ræktað fleiri tegundir, dýrari. Risahörpuskel og humar, því að nú er humarinn okkar að hverfa, því miður, eða jafnvel túnfisk. Hann kvað já við þessu öllu.

Þá kem ég aftur að því sem ég hef sagt nokkrum sinnum undanfarið hér í ræðustól að það sem Miðflokkurinn hefur lagt áherslu á í öllu þessu ástandi núna er að við tökum öllum tillögum ríkisstjórnarinnar fagnandi. Við styðjum þær. Við reynum að gera þær betri eins og stjórnarandstaðan hefur gert í heild. Ég verð að segja það núna, vegna þess að ég er búinn að hrósa þessari umræðu, að ég get eiginlega ekki hrósað stjórnarandstöðunni á Íslandi nógu mikið. Hún er búin að sýna ábyrgð, hún er búin að gangast við ábyrgð sinni. Hún hefur lagt fram mjög góðar tillögur, en ríkisstjórnin hefur því miður ekki haft kjark eða sjálfstraust til að þiggja þær, sumar hefur hún reyndar gert að sínum en allt í lagi með það. Það var ekkert Coca Cola-merki á þeim tillögum sem við lögðum fram þannig að það var allt í lagi. Vonandi vex ríkisstjórninni kjarkur og sjálfstraust nógu mikið til að í framhaldinu taki hún góðum tillögum betur af því að þær eru góðar, sama hvaðan þær koma. Ég vona að það gerist.

Þá ætla ég að halda áfram með það sem ég var að tala um: Hvað getum við gert núna? Við þurfum að vinna til baka þessi 50.000 störf. Hvernig ætlum við að gera það? Hvernig ætlum við að blanda saman tækni og grænni hugsun og því sem við eigum? Jú, með því að framleiða matvæli. Fyrst og fremst til að brauðfæða okkur sjálf. Það var líka horft vorkunnaraugum á þá sem töluðu fyrir matvælaöryggi hér í denn, menn flissuðu í servíettuna eða eitthvað svoleiðis þegar maður var að tala um þetta, en nú er allt í einu eins og blessuð skepnan skildi og menn hafa áttað sig á því hvað þetta raunverulega þýðir. Þetta þýðir ekki bara það að við brauðfæðum okkur sjálf. Þetta þýðir að í staðinn fyrir að fljúga með tómata hingað frá Kanaríeyjum framleiðum við þá hér allt árið. Svo eru það íslenskir grænmetisbændur. Allir tala um að það sé svo stórkostlegt kerfið sem var byggt upp fyrir þá fyrir 15, 20 árum, en það var ekkert svo stórkostlegt. Þessir ágætu aðilar voru að framleiða fjórar til fimm tegundir og fengu, eins og maður segir, frið til þess af hálfu stórverslana og annars. Það var fínt að hafa þá á þeirri hillu og svo var hægt að hafa annað grænmeti eins dýrt og menn kærðu sig um. Þetta eigum við hins vegar að leggja af og við eigum að fara að framleiða fleiri tegundir af grænmeti en við gerum í dag, miklu fleiri. Og ekki bara fleiri tegundir heldur verðmætari tegundir. Undanförnum kreppum, þá er ég að tala um nokkra áratugi, hafa alltaf fylgt framfarir. Við erum t.d. núna að veiða rétt um 200.000 tonn af þorski eða rétt undir því. Við höfum miklu meira út úr þeim afla en við höfðum út úr hálfri milljón tonna fyrir nokkrum áratugum. Þegar aflinn dróst saman vorum við neydd til að gera meira verðmæti úr því sem við drógum úr sjó. Á nákvæmlega sama hátt tel ég að við eigum að gera það nú þegar kreppir að. Það sem ég las í frétt á dögunum er kannski eitt besta dæmið um það hvernig Íslendingar bregðast oft við eða hvernig fólk bregst við nýjum aðstæðum. Mjög góður bóndi í Reykholti í Biskupstungum rekur mjög vinsælan ferðamannastað og gróðurhús sem heitir Friðheimar. Vöxturinn í ferðamennsku þar var ævintýralegur enda staðurinn stórkostlegur. En núna þegar ferðamennirnir þurrkast upp allt í einu, hvað gerir hann? Hann ætlar að tvöfalda garðyrkjustöðina til að framleiða meira af tómötum sem hann lagði ekki eins mikla áherslu á meðan hann hafði ferðamennina í hlaðinu hjá sér. Þetta er dæmi um það hvað við getum gert sem þjóð og hvað við eigum að gera hér til að hjálpa fólki og aðstoða það til að ná árangri eins og þessum og taka ákvarðanir eins og þessa.

Eitt af því sem hefur skort mjög, finnst mér, í þeim málum sem ríkisstjórnin hefur lagt fram til þessa er fjárfestingarhugsun. Kríusjóðurinn er allt í lagi, ég tek ofan fyrir honum, en okkur vantar svo miklu, miklu meira. Hvað þurfum við til að auka fjölbreytni í framleiðslu? Við þurfum tækni. Við þurfum tækni í lýsingunni. Við þurfum tækni og líffræðinga til að segja okkur hvernig við eigum að rækta, hvort það er fiskur, grænmeti eða hvað það er. Má ég þá minna einu sinni enn á það að fyrir um tíu árum síðan lagðist lúðueldi á Íslandi af. Það er eitt það sorglegasta sem maður hefur upplifað. 20 ára vísindavinna fór niður í vaskinn á andartaki vegna þess að menn vantaði sáralítið fé þannig lagað til að geta haldið áfram og til að halda öllu þessu lifandi. Það var stórkostlegt slys að þetta skyldi gerast. Núna höfum við kannski tækifæri til þess að fara aðeins til baka og vita hvort við getum ekki hafist handa aftur við þetta. Við búum að þessari gömlu þekkingu, hún er til, og við getum byggt ofan á hana.

Hv. þm. Helgi Hrafn Gunnarsson talaði um nýsköpun og tækni áðan. Þar eigum við náttúrlega gríðarlega möguleika. Við eigum stórkostleg tæknifyrirtæki. Þegar ég settist á þing árið 2013 hafði ég ekki hugmynd um að á Íslandi væri fyrirtæki sem smíðaði kafbáta, hvað þá heldur í mínum gamla heimabæ, Kópavogi. Það eru smíðaðir kafbátar í Kópavogi. Það eru smíðaðir þjarkar, sem sumir kalla róbóta, en þingmálið er íslenska. Verið er að hanna og smíða þjarka á tveim, þrem stöðum á Íslandi. Sumir hafa farið í vinnu í álverum og sparað þar mikinn tíma og mannskap. Af því að ég er að tala um að samtvinna matvælaframleiðsluna o.s.frv., þá hefur tæknifólk okkar kannski unnið einmitt stærstu sigrana þar. Það eru fyrirtæki eins og 3X, Valka og Marel, sem eru að auka virði matvæla sem við framleiðum hér og síðan er iðnaðurinn að verða jafn stór, getur orðið jafn stór og sjávarútvegurinn. Það sem okkur vantar núna og kemur til með að vanta næstu 36–40 mánuði að lágmarki er að auka verðmæti. Það sem við erum að gera núna er að við erum að forða verðmætum. Ég lít þannig á að við séum að forða verðmætum og þegar við höfum gert það þurfum við að einbeita okkur að því að auka verðmætin aftur. Hér var minnst á skatta og skattheimtu áðan, við gerum náttúrlega ekkert betra en að gera fyrirtækjum í fyrsta lagi kleift að ráða starfsfólk og það gerum við með því að samþykkja tillögu okkar Miðflokksmanna þegar hún kemur fram á næstu dögum um að ekki verði innheimt tryggingagjald þetta ár. Ríkisstjórnin er núna búin að gera ráðstafanir sem, hvað á ég að segja, hjálpa fyrirtækjum til að segja upp fólki. Nú er kominn tími til að hjálpa fyrirtækjum til að ráða fólk. Við þurfum að taka á því og síðan þurfum við að hámarka það virði sem við fáum út úr því sem við eigum.

Þá vitna ég í aðra jákvæða frétt sem ég las fyrir nokkrum dögum þar sem vísindamaður góður sagði að það væri meira verðmæti í einu kílói af ensímum en í einu tonni af þorski. Má ég minnast á fyrirtæki eins og Kerecis á Ísafirði, má ég minnast á líftæknifyrirtæki eins og Genís á Siglufirði. Við eigum alla þessa möguleika, við eigum þekkingu, við eigum fólk sem getur framkvæmt og unnið. Það sem við þurfum að gera núna er að hvetja það, skapa því skilyrði, við þurfum að passa okkur á að íþyngja því ekki með sköttum eða tefja það. Má ég þá minnast á fyrirtæki suður á Reykjanesi sem er tilbúið í það núna að tvöfalda framleiðslu sína á bleikju, hágæðaframleiðsla, algjörlega græn, eiginlega orkufrí nema að því leyti að heitt vatn er notað. Má ég minnast á það að árið 1990 opnaði Nesjavallavirkjun hér uppi á heiði. Allt affallsvatn frá þeirri verksmiðju hefur í 30 ár runnið ónýtt og endað í Þingvallavatni. Við Hellisheiðarvirkjun rennur það vatn sem ekki er borað niður og gert að því sem kallað er glópagull, niður allt Ölfus og smákólnar. Það gæti runnið í gegnum margar fiskeldistjarnir, það gæti runnið í gegnum mörg gróðurhús. Kannski kennir þessi kreppa okkur að hætta að sóa eins og við gerum og byrja að bera virðingu fyrir þeim verðmætum sem við erum að brjóta land til að ná til.

Til þess þurfum við líka annað. Það sem ríkisstjórnin er svolítið búin að vera að gera er að elta ástandið í staðinn fyrir að mæta því. Ég er ekki með eftiráspeki. Þetta sögðum við strax í upphafi vega þegar hæstv. fjármálaráðherra boðaði kenningu sína um að gera meira en minna, sem hefur síðan aðeins lekið út. Við þurfum strax að gera ráðstafanir til þess og ásetja okkur hvað við viljum gera: Hvar viljum við vera eftir sex mánuði, níu, 12, 18? Og vinna að því núna. Hér var talað áðan um fólk og fyrirtæki eins og það væri hvort sinn hluturinn. Ég hef aldrei komið inn í fyrirtæki þar sem ekki er fólk, frá einum manni upp í mörg þúsund. Fyrirtæki er bara hópur fólks. Þetta er það sem við þurfum að leggja grunninn að núna. Við þurfum að ná samstöðu um það núna og við þurfum að hlusta hvert á annað eins og við höfum verið að gera. Við þurfum að taka bestu tillögurnar, og það er sama hvaðan þær koma, og við þurfum að fylgja þeim fram. En til þess þarf ríkisstjórnin að öðlast kjark til að hlusta á góðar tillögur og taka þær alvarlega.

Ég hef ekki enn minnst á lyfjaiðnaðinn. En eins og ég segi, það eru tækifæri úti um allt. Það sem við þurfum að gera núna er að kortleggja þau og auka þau. Og af því að ég var með hugann áðan suður í Grindavík út af bleikjueldisfyrirtæki þá þarf það fyrirtæki sem vill tvöfalda framleiðslu sína að bíða í 18 mánuði eftir einu leyfi. Fyrirtæki í þeim iðnaði og fleiri eru seld undir það að ef þau standa sig ekki í einhverju fá þau dagsektir. Það hringdi í mig maður um daginn og hann sagði: Af hverju er það ekki þannig að þegar einhver stofnun dregur það meira en góðu hófi gegnir að veita leyfi svo menn geti haldið áfram að vinna sína vinnu, þá fái stofnunin dagsektir? Þetta er brilljant hugmynd eða afskaplega góð, herra forseti.

Það sem ég vildi sagt hafa er að tækifærin eru þarna. Nú þurfum við bara að grípa þau. Við þurfum að kortleggja þau saman og gera það mesta úr þeim.