frekari aðgerðir til að mæta efnahagslegum áhrifum í kjölfar heimsfaraldurs kórónuveiru.
Virðulegur forseti. Á þessum alvarlegu óvissutímum, á þessum óskýru tímum þar sem nýjar og nýjar sviðsmyndir eru dregnar upp með fárra daga millibili og ekki allar jafn bjartar, er mikilvægt að týna ekki áttum í umrótinu, að geta litið upp og horft til framtíðar. Ástandið sé tímabundið, það sérkennilega ástand sem þó er alls ekki hægt að líkja við neinar náttúruhamfarir, jarðskjálfta eða eldgos, storm og óveður. Þetta er meira í líkingu við einhvers konar sorgartíma eða tregastundir, kyrrstaða þar sem allt er í hægagangi og kyrrð ríkir víða, umferð fólks og farartækja dregst saman svo engu er líkt og nánast enginn núlifandi Íslendinga hefur upplifað.
Virðulegur forseti. Ný verkefni, ný viðfangsefni bíða. Framtíðin bíður. Það eru spennandi tímar. Tækninni fleygir fram og við horfum fram á kúvendingu á ýmsum sviðum. Við tölum um fjórðu iðnbyltinguna, með sprengiáhrifum í gervigreind, róbótatækni, sjálfkeyrandi bílum, sjálfvirknivæðingu og fleiru sem mun líklega valda miklum samfélagsbreytingum á næstu misserum, árum og áratugum.
Nýsköpun er þess vegna lykilhugtak, grundvallaratriði fyrir sjálfstæða þjóð sem einsetur sér að efla velferð og skapa þegnum sínum ákjósanlegt líf á borð við það besta sem þekkist meðal þjóða. Það eru margir spennandi hlutir að gerast á þessu sviði á Íslandi. Margvíslegir sprotar og angar sem gefa góð fyrirheit eða geta gert það ef þeir fá bara jarðveg og ná að festa rætur. Það eru einmitt til fyrirtæki sem náð hafa þessari nauðsynlegu rótfestu og eru orðin burðug, öflug og skipta miklu máli í íslensku atvinnulífi, þróuð hátæknifyrirtæki sem haslað hafa sér völl á alþjóðamörkuðum.
Ég vil einbeita mér að landsbyggðinni og nefna dæmi um þetta: Fyrirtæki sem starfar á tveimur stöðum í mínu kjördæmi, á Akranesi og á Ísafirði. Það er fyrirtækið Skaginn 3X, sem á í viðskiptum um allan heim með sínar þróuðu hátæknivörur, einkum í fiskiðnaði. Nýsköpunin á landsbyggðinni er mikilvæg en á sama tíma brothætt. Það er sérstakt áhyggjuefni. Ef ég horfi bara á mitt kjördæmi þá blómstrar raunar nýsköpun á mörgum sviðum. Ég leyfi mér að taka svo djúpt í árinni. Á Skagaströnd t.d. er starfandi sjávarlíftæknisetur sem byggir starf sitt á rannsóknum á lífríki Húnaflóa og hefur alla burði til að vaxa. Á Blönduósi er unnið að áhugaverðum verkefnum í matvælaþróun og spennandi möguleikar eru tengdir gagnaverum. Í Húnaþingi vestra er mikil gerjun og nýsköpun í ferðaþjónustu og ýmsum störfum tengdum henni. Á Sauðárkróki er unnið af miklum metnaði að þróun á ýmsum vörutegundum sem verða til í sjávarútveginum. Það á reyndar einnig við um afurðir sem koma frá landbúnaði og nýttust ekki áður. Á Ísafirði vex starfsemi fyrirtækisins Kerecis hröðum skrefum, fyrirtæki sem vinnur verðmæta afurð úr fiskroði fyrir erlenda markaði. Ég gæti haldið lengur áfram en þetta eru dæmi tekin af tilviljun um möguleikana og hug fólks um landið til að takast á við og fást við ný verkefni sem blasa við í framtíðinni. Það skortir ekkert á áhugann, færnina og þekkinguna hjá fólki á svæðunum. Ef kostirnir bjóðast þá drífur að fólk. En okkar er að skapa almennar forsendur til þess að nýsköpun fái að dafna og taka þarf sérstakt tillit til aðstæðna þar sem fjarlægðir eru talsverðar og kostnaðarsamt er að afla aðfanga ef það á við og koma þeim sömu leið á markaði.
Í þessu sambandi er ástæða til að velta vöngum yfir því hvað stjórnvöld eru raunverulega að sýna í verki varðandi mikilvægi þessa þáttar, sérstaklega þeim þætti sem snýr að nýsköpun á landsbyggðinni. Formaður efnahags- og viðskiptanefndar, hv. þm. Óli Björn Kárason, mælti fyrir nefndaráliti í dag þar sem m.a. er fjallað um lagabreytingar og ýmis jákvæð atriði sem lúta að nýsköpunarfyrirtækjum. Þau voru góð svo langt sem þau ná. Þessi atriði auðvelda fyrirtækjum og jafnvel einstaklingum að takast á við afleiðingar Covid-veiru faraldursins, að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. En því skal haldið til haga sem vel er gert og viðleitni stjórnvalda er góð. Þetta eru bara atriði sem nefnd voru í dag. Þetta er bara atriði til bráðabirgða en ekki til frambúðar hvað varðar nýsköpunarfyrirtæki. Það er vandinn. Nýsköpunar- og sprotafyrirtæki búa í of ríkum mæli við óvissu og er erfitt fyrir mörg þeirra að gera lengri tíma áætlanir um þróun og vöxt.
Á mánudag mælti samgönguráðherra fyrir frumvarpi um svæðisbundna flutningsjöfnun olíuvara sem felur í sér niðurlagningu flutningsjöfnunarsjóðs olíuvara. Þetta langar mig að gera að svolitlu umtalsefni. Þetta er lítið frumvarp en skiptir miklu máli fyrir þá sem búsettir eru á landsbyggðinni. Lögin um svæðisbundna flutningsjöfnun eru að uppistöðu til frá árinu 2011. Markmið þeirra laga er að styðja við framleiðsluiðnað og atvinnuuppbyggingu á landsbyggðinni með því að jafna flutningskostnað framleiðenda sem staðsettir eru fjarri innanlandsmarkaði eða útflutningshöfn og búa við skerta samkeppnisstöðu vegna hærri flutningskostnaðar en þeir sem staðsettir eru nær markaði. Mörg fyrirtæki í nýsköpun segja þennan stuðning vera lítinn og nánast táknrænan, hann skipti ekki sköpum í rekstrinum, en þessi þáttur sé þeim afar þungur og fyrirferðamikill rekstrarliður og skapi mismunun á markaði. Að þessu þarf að huga og bæta stöðuna ef það er í raun ásetningurinn að styrkja sprotafyrirtæki og nýsköpun á landsbyggðinni.
Með þessu frumvarpi ráðherra er flutningsjöfnunarsjóður olíuvara felldur út og umsýslan færð til Byggðastofnunar, líkt og gerist og gengur með hina almennu flutningsjöfnun. Tekjur flutningsjöfnunarsjóðs olíuvara verða til við það að innflytjendur á olíuvörum greiða flutningsjöfnunargjald. Árið 2018 var gerð breyting á lögum þess efnis að nú renna tekjurnar í raun og veru ekki í sértækan flutningsjöfnunarsjóð heldur þær renna beint í sjóðinn stóra og mikla sem aldrei fyllist, þ.e. ríkissjóð. Jafnframt var því bætt við að ráðherra skuli samkvæmt fjárlögum veita fé í flutningsjöfnunarsjóð olíuvara, þ.e. í þennan sjóð til að jafna olíuverð um landið, sem nemur að lágmarki því sem áætlað er að innheimtist af gjaldinu. Þeir peningar hafa skilað sér illa. Í sjóðinn fara umtalsvert minni peningar en innheimtir er af innflytjendum. Á árinu 2016 námu tekjur af þessu gjaldi um 376 millj. kr., 2017 387 millj. kr. og 2018 403 millj. kr. og má gera ráð fyrir að a.m.k. 400 eða 410 milljónir hafi komið í þennan sjóð í fyrra. En fjárhæðin sem ákvörðuð er á fjárlögum 2020 nemur 375 millj. kr.
Virðulegur forseti. Hvað varð um þennan mismun? Þykir þetta nægilegur jöfnuður? Það er undarlegt og endurspeglast alla vega ekki í verði á bensíni til íbúa á landsbyggðinni. Ódýrasti lítrinn í dag, á Hólmavík þar sem er samkeppnismarkaður, þar eru tvær stöðvar, kostar 209,50 kr., en ódýrasti lítrinn í Reykjavík kostar 183,40 kr. Þetta er ófullnægjandi verðjöfnun.
Samfylkingunni, jafnaðarmannaflokki Íslands sem fagnaði 20 ára afmælið í gær, finnst þetta ekki í lagi. Þetta er ekki jöfnuður. Ýmsum kann að finnast flutningsjöfnun á jarðefnaeldsneyti vera tímaskekkja og úr samhengi við framtíðarsýn okkar í umhverfis- og loftslagsmálum, að við ættum að einhenda okkur af auknum krafti í orkuskiptin. Það eigum við hiklaust að gera en við verðum að hafa í huga að framboð á orkugjöfum til samgangna á viðkvæmum stöðum á landsbyggðinni er misjafnt. Ekki verður því við komið enn sem komið er að nýta stór, vélknúin tæki með nýjum orkugjöfum, t.d. í landbúnaði og í vöruflutningum. Sá tími er væntanlega innan seilingar en á meðan svona stendur á, á meðan við erum ekki lengra komin í þessu ferli, er eðlilegt að jafnræði ríki þarna eins og frekast er hægt.
Þess má líka geta að þetta á ekki bara við um landbúnað. Flutningsjöfnuður á eldsneyti er líka stórnotendum mikilvægur, t.d. í útgerð þar sem hún blómstrar mjög víða í smærri byggðarlögum. Nýsköpunarfyrirtækjum sem spreyta sig á samkeppnismarkaði er mikilvægt að á sem flestum sviðum ríki sambærilegar forsendur til rekstrar. Það eiga stjórnvöld að einblína enn meira á ef hugur fylgir máli. Þar kemur bæði almenn flutningsjöfnun og verð á eldsneyti og jöfnun verðs á því aldeilis við sögu og tengist auðvitað líka almennum búsetuskilyrðum fólks á landsbyggðinni.
Það var býsna áhugavert að hlýða á ráðherra samgöngumála í gær þegar hann fullyrti að síður en svo yrði dregið úr þessum jöfnunarþætti með flutningi umsýslunnar til Byggðastofnunar. Hann væri mikilvægur. Eins og fyrr er sagt flyst nú umsýslan þangað. Í stað sérstaka gjaldsins á olíuvörur á nú að koma beint framlag úr ríkissjóði til svæðisbundinnar flutningsjöfnunar upp á 175 millj. kr. sem fjármagnað verði með hækkun vörugjalds á olíuvörur. Upphæðin sem fer í þessa jöfnun er á árinu 2020 hins vegar 375 milljónir á fjárlögum. Hvað er í gangi? Er ekki augljóst að hér verður um stórfelldan niðurskurð að ræða? Nei, segir ráðherra. Gamla kerfið var kostnaðarsamt og úrelt. Nýja kerfið á að skila því sama.
Munurinn á 175 millj. kr. og 375 millj. kr. er talsverður og það er erfitt að trúa því að 200 millj. kr. hafi farið í umsýslukostnað vegna þessa 375 millj. kr. sjóðs. Það flögrar að manni hvort verið sé að beita þarna gamla bragðinu um að kynna gamalt vín á nýjum belgjum, kannski að tími kraftaverkanna sé upprunninn aftur. Nú verði hreinlega vatni breytt í vín eða bensín og olíu. Guð láti gott á vita. Eða er kannski bara verið að slá ryki í augu almennings á landsbyggðinni, að verið sé að draga úr flutningsjöfnuði, draga úr jöfnuði milli þeirra sem búa á landsbyggðinni og þeirra sem búa nær þéttbýlinu? Það þarf að skýra þessi atriði og við leggjum áherslu á það í nefndarvinnunni.
Eitt er víst: Vöxtur og viðgangur nýsköpunar á landsbyggðinni er háður því að sprotarnir fái að glíma á jafnræðisgrunni. Mjór er mikils vísir. Sú vísa er aldrei of oft kveðin því að staðreyndin er að sú reynslan sýnir að þarna liggja tækifærin og þarna liggja möguleikarnir, í hugviti einstaklinga, til að byrja með og frumkvæði þeirra. Við eigum að skapa þeim ákjósanlegar aðstæður hvar sem þessir frumkvöðlar eru í sveit settir á landinu. Aðdrættir og aðföng hjá þeim sem eru í vöruframleiðslu eru lykilatriði. Flutningskostnaður er þar eitt af stóru málunum, hvort sem um er að ræða fyrirtæki sem eiga viðskipti eingöngu innan lands eða eru í viðskiptum á alþjóðavísu. En við eigum síðan að líta til þess að æ fleiri byggja sitt viðurværi, sitt hugvit og tækni á rafrænum lausnum þar sem staðsetning skiptir ekki máli og samskipti eiga sér stað með rafrænum hætti.
Virðulegur forseti. Nauðsynlegt er að hafa þessa þætti hugfasta ef okkur á að takast að vera áfram eins og við viljum vera; í fremstu röð.