150. löggjafarþing — 99. fundur,  6. maí 2020.

útlendingar og atvinnuréttindi útlendinga.

717. mál
[22:43]
Horfa

dómsmálaráðherra (Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir) (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Mig langar að koma inn á nokkur mál. Fyrst varðandi verndarmálin, ég ítreka að umsækjendur fá einstaklingsbundna skoðun, þau fá viðtal og geta lagt fram öll þau gögn sem þau vilja til að færa fram rök fyrir vernd hér þrátt fyrir að þau hafi vernd annars staðar. Með þessari breytingu, þó að heimild 2. mgr. 36. gr. muni ekki ná til verndarmála, fer ávallt fram skoðun hér á landi samkvæmt útlendingalögum og mat hvort endursending myndi brjóta í bága við 42. gr. útlendingalaga og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu.

Síðan, af því að hv. þingmaður ræddi mikið um fylgdarlaus börn, langar mig að nefna að tekið var sérstaklega til skoðunar fjöldi fylgdarlausra barna sem hingað koma og hvernig okkur gengur að taka á móti þeim. Ljóst var að við þyrftum að gera betur við þau börn sem hingað koma fylgdarlaus og það hefur verið í skoðun og er í mikilli skoðun í ráðuneytinu að tryggja öryggi þeirra enn betur til að við getum einmitt veitt enn þá ríkari aðstoð. Ýmis lönd hafa sett sér rík markmið eins og komið var inn á varðandi Þýskaland. Þar hefur nú þegar verið tekið á móti aðeins 100 börnum en markmiðið er vissulega stærra. Markmið okkar er líka að gera betur og við erum að skoða mjög ríkulega hvernig við getum aðstoðað betur þau fylgdarlausu börn sem hingað koma, sem eru 22, að mig minnir, ef við horfum til ársins 2019 en þar þurfum við að gera betur svo að við styðjum við þau í öllum skrefum í að aðlagast íslensku samfélagi og þar erum við með sérstaka greiningu á stöðu barna í alþjóðlega verndarkerfinu.

Mig langar líka að ítreka það eftir ræðu hv. þingmanns að ekki er verið að breyta neinu varðandi Dyflinnarreglugerðina og það að við erum hætt að endursenda til Grikklands og Ungverjalands til að mynda vegna þeirra ákvæða sem við erum með í útlendingalögum. Við sendum ekki, og tekin var ákvörðun um það fyrir talsvert mörgum árum síðan og í því hefur ekkert breyst. Varðandi stefnu okkar er hún mannúðleg, við erum (Forseti hringir.) að veita fólki sem er í þörf fyrir vernd, alþjóðlega vernd. Við erum talin standa okkur vel í þeim efnum þegar (Forseti hringir.) litið er til landa í kringum okkur.