útlendingar og atvinnuréttindi útlendinga.
Virðulegur forseti. Jú, við eigum einmitt að gera það. Það er sá forgangur sem er leiðarljós í útlendingalögum okkar, að aðstoða fólk sem er að flýja ofsóknir, stríð og þannig ástand að það þarf að flýja heimaland sitt. Það er einmitt þannig sem útlendingalöggjöfin okkar er og við veitum fjölda fólks alþjóðlega vernd á hverju einasta ári, eins og í fyrra.
Ég gæti auðvitað farið inn á margt í ræðu hv. þingmanns og þegar hann ræðir um börnin þá er ég mjög opin fyrir þeirri umræðu. Þarna eru mjög mismunandi skoðanir fólks varðandi það að hafa hagsmuni barna að leiðarljósi, hvort við eigum að leggja þá ábyrgð einhvern veginn á börnin og þau leiði viðtalið og að niðurstaða þess viðtals ráði sem sagt niðurstöðu í máli fjölskyldunnar. Það er mjög stór ákvörðun og þarf að taka þá ákvörðun í samræmi við allan barnasáttmálann. Ef maður les hann í heild er það ekki alveg skýrt að það sé niðurstaðan, (Forseti hringir.) en ekki að það sé í samvinnu við foreldrana. Þarna er bara lína (Forseti hringir.) sem ég er mjög opin fyrir að ræða og tel mjög mikilvægt að við ræðum. En það eru mjög skiptar skoðanir um þetta. Ég hef kallað eftir skoðunum (Forseti hringir.) UNICEF og fleiri aðila og það eru skiptar skoðanir þegar sest niður og þessi mál rædd. (Forseti hringir.) En ég er opin fyrir því að heyra fleiri sjónarmið um það.