útlendingar og atvinnuréttindi útlendinga.
Virðulegur forseti. Við getum alveg tekið kvöldið í að ræða ákvæðin sem eru slæm í frumvarpinu. (Gripið fram í: Gerum það.) En meira að segja þó að við ræðum ákvæðin sem eru til bóta þá geta þau verið varhugaverð. Til dæmis er gott að hlustað hafi verið á Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna varðandi það að fresta réttaráhrifum niðurstöðu í verndarmálum þannig að fólk geti leitað réttar síns fyrir kærunefnd áður en því er vísað úr landi. En þetta er frekar innantóm úrbót á stöðu þessa fólks þegar síðan er með 11. gr. séð til þess að eina leiðin fyrir þau að fá efnislega niðurstöðu í kæru sína er ef farið er yfir 12 mánaða afgreiðslufrest hjá hinu opinbera. Það er sem sagt enginn efnislegur grundvöllur eftir, þökk sé 11. gr., til að veita vernd veiku fólki, óléttum konum og fjölskyldum sem hafa fest rætur í íslensku skólakerfi ef þau hafa vernd í öðru landi. Þökk sé meira að segja einni skástu grein frumvarpsins.