útlendingar og atvinnuréttindi útlendinga.
Virðulegur forseti. Já, undirförult er svo sem eitt af þeim orðum sem má hengja á þetta frumvarp. Það á að vera hægt að gera miklu betur. Það á að vera hægt að semja frumvörp sem straumlínulaga kerfi án þess að draga úr mannúð. Það var pælingin á bak við það hjá fólkinu sem samdi núgildandi útlendingalög að vera með skilvirknina og mannúðina saman sem markmið, ekki að þau vinni hvort gegn öðru heldur að þau styrki hvort annað. Eins og þingmanninum finnst mér frumvarpið anga allt of mikið af því að það eigi að spara pening. En það er bara þannig að mannréttindi kosta pening. Það er bara þannig að stríð kostar pening og við sem stofnaðili NATO berum ábyrgð á sumum þeim hörmungum sem fólk er að flýja. Það er bara þannig að loftslagsbreytingar, misskipting og allar þær ótal mörgu ástæður sem valda því að fólk (Forseti hringir.) leggur á flótta kosta pening. Hver á að borga? Ætlar Ísland að segja: Ekki ég? (Forseti hringir.) Ætlum við að vera ábyrgðarlaus í samfélagi þjóðanna?