150. löggjafarþing — 99. fundur,  6. maí 2020.

útlendingar og atvinnuréttindi útlendinga.

717. mál
[23:38]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (U) (andsvar):

Virðulegur forseti. Kannski er rétt að taka fram að ég sit ekki í núverandi útlendinganefnd. Sumarið 2019, sem þingmaðurinn vitnar til, var ég fyrir löngu búinn að leggja til við ráðherrann að leggja niður fyrri nefndina og endurræsa þetta ferli á almennilegum grunni, nýtti til þess tækifæri nokkrum dögum eftir að Sigríður Á. Andersen sagði af sér embætti. Ég sá fyrir mér að húsbóndavaldið í ráðuneytinu gæti orðið hliðhollara einhverjum breytingum. Það tók samt hálft ár að koma nýju nefndinni saman, hún var ekki skipuð fyrr en í október eða nóvember eftir að ég hafði lagt þetta til í mars. Þannig að hlutirnir gerast hægt í þessum bransa, sýnist mér, og það er ekki langt eftir af kjörtímabilinu. Þetta verklag er eitthvað sem við mættum alveg setja spurningarmerki við vegna þess að kveðið er á um þessa nefnd í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar sem gefur til kynna að ríkisstjórnin eigi að hafa einhverja stefnu en ekki bara fórna höndum þegar kemur að (Forseti hringir.) einhverju máli og útvista stefnumörkuninni til þingsins. Ef svo væri þá gætum við verið með þjóðstjórn (Forseti hringir.) í fleiri málum en útlendingamálum.