150. löggjafarþing — 100. fundur,  7. maí 2020.

kostnaður við nýjan Landspítala.

[10:51]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Virðulegur forseti. Mig langar við þetta tilefni að rifja upp fyrirspurn sem ég sendi hæstv. fjármálaráðherra upp úr miðjum janúar, fyrir tæpum fjórum mánuðum. Í grunninn er fyrirspurnin ekki flókin, í rauninni já- eða nei-spurning, en síðan eru vissulega tvær viðbótarspurningar sem orsaka það kannski að hægt gengur með svör þó að ég telji líklegt að vinnan við svörin sé ekki unnin í fjármálaráðuneytinu á þessum snúnu Covid-tímum.

Það sem ég spurði um á sínum tíma og mig langar til að forvitnast um hér við þetta tækifæri er hvort stjórn nýs Landspítala ohf. eða til þess bærir aðilar fyrir hönd stjórnar hafi sent stjórnvöldum uppfærða kostnaðaráætlun fyrir byggingu nýs Landspítala. Reglulega kemur fram gagnrýni á að vegna ohf. ríkisins sé erfitt að sækja upplýsingar þangað. Vissulega er formið með þeim hætti að í flestu samhengi starfa opinber hlutafélög í sama starfsumhverfi og hefðbundin hlutafélög hvað þetta varðar. Í ljósi þess að það er auðvitað mikill fókus á það að átta sig á hver framkvæmdastaðan er í samfélaginu — hér er verið að ræða samgöngupakka höfuðborgarsvæðisins, borgarlínu og annað slíkt — þykir mér algjör lágmarkskrafa um jafn stórt og mikilvægt verkefni og þetta er að þinginu sé ljóst hvort einhverjar breytingar séu að verða á áætlunum um kostnað verkefnisins. Ég reiknaði sannast sagna með að svari við þessari fyrirspurn yrði kastað fram eða til baka á stuttum tíma en nú fer að halla í fjóra mánuði og þess vegna langar mig að spyrja hæstv. forsætisráðherra um þetta.