utanríkis- og alþjóðamál.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir góðar spurningar. Önnur spurningin er nú í stærra lagi en ég skal reyna að svara henni. Fyrst varðandi það hvort þetta hafi verið alvarlegt ástand. Já, virðulegi forseti, það var það. Það hefði verið mjög alvarlegt fyrir okkur ef þetta bann hefði haldið áfram en það var á grunni EES-samningsins sem við fengum því hnekkt vegna þess að þeir voru að brjóta EES-samninginn. Og þá er komið að kjarna máls, að fyrir litla þjóð, svo sem allar þjóðir en sérstaklega fyrir litla þjóð, þegar svona hlutir gerast, er gott að geta gripið til samnings og geta sagt við viðkomandi aðila: Þið eruð að brjóta samninginn. Það er það sem við gerðum, EFTA-ríkin, og áttum þar gott samstarf við bæði Noreg og Liechtenstein til að leysa þetta. Ég skal reyna að svara seinni spurningunni á eftir.