utanríkis- og alþjóðamál.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin. Það er gott og blessað að samningurinn hafi skilað okkur þessu. En mig langaði að spyrja: Telur ráðherra að utanríkisráðuneytið muni breytast vegna Covid? Verður meira um fjarfundi? Verða breytingar á skrifstofum utanríkisráðuneytisins vegna þessa? Síðan langar mig líka að spyrja í sambandi við NATO og hernaðarbandalög, en mér sýnist við vera að fara af stað með einhvern hernaðarsperring hérna á norðurslóðum. Við gætum jú sprengt okkur í tætlur með kjarnorkusprengjum og öðru en mér sýnist á öllu miðað við Covid að það verði frekar einhver smáveira sem við sjáum ekki með berum augum sem gæti drepið okkur miklu frekar. Spurningin er: Er ekki kominn tími til að við förum að endurskoða (Forseti hringir.) hernaðarbandalög og einbeita okkur að því að finna lausnir gagnvart þessum litla óvini sem er okkur mun hættulegri?