150. löggjafarþing — 100. fundur,  7. maí 2020.

utanríkis- og alþjóðamál.

749. mál
[12:20]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir skýrsluna og ræðuna og ég mun koma inn á eitt og annað á eftir í minni ræðu. Mér fannst ræða ráðherra hér áðan eiginlega undirstrika enn frekar nauðsyn þess, í ljósi þeirra fordæmalausu tíma sem við lifum, að við skoðum hvernig æskilegast er að treysta stöðu Íslands í alþjóðlegu samhengi. Að mínu mati þarf að stíga þar ákveðin skref og þó að ég sé ákveðinnar skoðunar þá þurfum við engu að síður að nýta tímann og skoða hvaða kostir eru hagfelldastir fyrir okkur.

Ég vil því spyrja hæstv. ráðherra: Er hann sammála mér í því? Mun hann styðja okkur í því að vinna úttekt á stöðu Íslands í svæðisbundinni fjölþjóðlegri samvinnu þar sem mat verði lagt á hvernig styrkja megi stöðu Íslands á alþjóðavettvangi til framtíðar? Það verði einfaldlega lagt mat á það hvort tvíhliða samningar séu til þess fallnir að gæta hagsmuna Íslands í þessu breytta umhverfi (Forseti hringir.) eða hvort við dýpkum okkar alþjóðasamvinnu sem víðast. Styður hann okkur í Viðreisn og fleiri þingmenn annarra flokka (Forseti hringir.) í því að það verði skipuð nefnd til að fara einmitt yfir þessa risavöxnu hagsmuni okkar?