utanríkis- og alþjóðamál.
Herra forseti. Ég þakka hæstv. utanríkisráðherra fyrir framsöguna og við munum eiga gott tækifæri á eftir til að fara nánar í þau málefnasvið sem eru undir í skýrslu um utanríkismál. Ég hef áhuga á því að heyra hvernig mál standa og viðræður hjá hæstv. utanríkisráðherra við kollega hans á Norðurlöndum. Þann 30. apríl tjáði hæstv. utanríkisráðherra sig við Ríkisútvarpið um að það kæmi vel til greina af hans hálfu að opna landamæri milli Norðurlandanna en ekki hefði þó átt sér stað formlegt samtal. Það var fyrir viku síðan og ég myndi gjarnan vilja heyra hvort einhver önnur formlegri samtöl hafi átt sér stað síðan þá og ef svo er, hvort eitthvað hafi hreyfst í þessum efnum í þeim samtölum. Ég vil kannski líka fá sýn hæstv. utanríkisráðherra á horfurnar á því að (Forseti hringir.) aflétta takmörkunum á hreyfingar og för fólks milli Norðurlanda og Íslands.