150. löggjafarþing — 100. fundur,  7. maí 2020.

utanríkis- og alþjóðamál.

749. mál
[12:28]
Horfa

Rósa Björk Brynjólfsdóttir (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Ég er hjartanlega sammála hæstv. ráðherra um mikilvægi þessa að eiga þessi samtöl um afléttingu á takmörkunum á för fólks milli Norðurlandanna, kannski sér í lagi vegna þess að Norðurlöndin hafa verið með mismunandi stefnu og áherslur í viðbrögðum sínum við Covid. Svíar skera sig mjög úr og þá getur maður ímyndað sér að þetta geti orðið svolítið flókið. En ástæðan fyrir því að ég spyr út í þetta er kannski það sem hæstv. ráðherra kom aðeins inn á í sínu andsvari, þ.e. þetta samhæfingarhlutverk. Nú hefur hæstv. forsætisráðherra verið í formlegum samtölum við Ernu Solberg þann 16. apríl, við Stefan Löfven 29. apríl og við Mette Frederiksen 24. apríl og eins og hæstv. utanríkisráðherra kom inn á er þetta líka á borði dómsmálaráðherra. Ég myndi gjarnan vilja fá að vita hvernig samhæfingarhlutverkin eru á milli ráðherra og hvort verið sé að samhæfa þessi samtöl sem eiga sér stað milli ráðamanna á Íslandi og ráðamanna á Norðurlöndunum (Forseti hringir.) og hver sé hin eiginlega lína þegar kemur að því að opna á för fólks á milli Norðurlandanna.