utanríkis- og alþjóðamál.
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra framsöguna um þessa skýrslu. Á bls. 8. eins og hæstv. ráðherra rakti, segir:
„Þau tímamót urðu á síðasta ári að sérstök skýrsla um EES-samninginn var gefin Alþingi“ — reyndar svolítið sérstakt orðalag — „en fram að því hafði slík upplýsingagjöf fallið undir skýrslu utanríkisráðherra um utanríkismál.“
Þetta var afrakstur skýrslubeiðni hv. þm. Ólafs Ísleifssonar, en í beiðninni var farið fram á skýrslu um kosti og galla EES-samningsins. Skýrslubeiðnin var samþykkt á Alþingi í þrígang og hæstv. ráðherra skipaði starfshóp og gaf út erindisbréf um að hann skyldi fjalla um ávinninginn af samstarfinu. Ég endurtek: Ávinninginn af samstarfinu. Það sjá allir muninn á því að fjalla um kosti og galla og síðan ávinning. Ég vil því spyrja hæstv. ráðherra: (Forseti hringir.) Hvers vegna var erindisbréfið ekki í samræmi við skýrslubeiðnina?